Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gerir ekkert gagn um áramótin

Gaml­árs­dagur er upp­á­halds­dagur Haf­steins Ormars

Gerir ekkert gagn um áramótin
Haf­steinn Ormar Hann­es­son Er fram­kvæmda­stjóri eins vin­sælasta þrifa­fyr­ir­tæki Íslands. Mynd: Víkingur

Nú stytt­ist óðum í ára­mótin og ákvað Mannlíf að heyra í nokkrum frá­bærum ein­stak­lingum um upp­á­halds­ára­mót þeirra, hvort við­kom­andi ætli að strengja ára­móta­heit og margt fleira.

Haf­steinn Ormar Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Heim­il­is­þrifa, er einn mesti ára­móta­maður Íslands og því var nauð­syn­legt að fá hans sögur af ára­mótum.

Hver eru þín eftirminnilegustu áramót?

Gaml­árs­dagur hefur frá því að ég var barn alltaf verið minn upp­á­halds dagur árs­ins þannig að öll ára­mót eru mér mjög eft­ir­minni­leg. En er ég rifja upp þessi 36 ára­mót sem ég hef lifað þá eru ein­ungis skemmti­legar minn­ingar sem koma upp. En ætli þau eft­ir­minni­leg­ustu séu ekki þegar ég var um 10 ára gam­all og við strák­arnir í Fylki fengum það verk­efni að tendra Fylk­is­brenn­una. Þá var kyndil­ganga frá Fylk­is­heim­il­inu að Brenn­unni, sem var þó ekki löng leið (um 200-300m) en fyrir 10 ára gamlan dreng hald­andi á brenn­andi kyndli var það ákveðin þraut­ar­ganga.

Þessi hefð hefur því miður verið aflögð og í stað­inn fyrir að krakkar í yngri flokkum fá að tendra brenn­una þá er í stað­inn fengið í verkið vel dúð­aður starfs­maður Reykja­vík­ur­borgar sem kveikir í henni með gas­brenn­ara, mikil róm­an­tík í því. Mér hefur alltaf þótt mjög vænt um þessa hefð að halda ára­móta­brennur og hef mætt á allar Fylk­is­brennur frá því að ég man eftir. Brenn­urnar er frá­bær vett­vangur fyrir íbúa í hverf­inu til að hitt­ast, syngja og jafn­vel fá sér einn sjúss eða tvo.

Ætlar þú að strengja áramótaheit?

Ég hef aldrei kom­ist á lagið með að strengja ára­móta­heit og hugsa að ég muni ekki gera það þessi ára­mót heldur. Ef það er eitt­hvað sem þarf að gera, breyta eða bæta í mínu lífi þá geri ég það án þess að bíða til ára­móta.

Hvað ætlar þú að gera um áramótin?

Ég þarf ekki plan fyrir ára­mótin, ára­mótin eru ritúal. Ritúal sem ég hef haldið frá því að ég komst á full­orð­insár.

En dag­ur­inn byrjar ekki ósvipað öðrum dögum; á sturtu. Svo er haf­inn und­ir­bún­ingur á veit­ingum sem verða á boðstólnum þegar horft er á Krydd­síld­ina en það er alltaf opið hús fyrir gesti og gang­andi á meðan Krydd­síldin stendur yfir og oft mik­ill gesta­gangur á þessum tíma.

Áður en útsend­ing hefst og ef tími gefst þá fer ég á YouTube og horfi á gamlar Krydd­síldir. Þegar síld­inni er lokið og for­menn­irnir eru búnir að halda sína tölu og skála þá er oft­ast kom­inn mik­ill spenn­ingur í mig. Spenn­ingur sem ég bíð eftir á hverju ári að vaxa upp úr en hingað til hefur það ekki gerst. Það er eitt­hvað við þennan dag sem ég á erfitt með að útskýra sem heillar mig meira en allir aðrir dagar árs­ins. Það gætu verið flug­eld­arnir en það gæti líka verið sú kosmíska til­finn­ing að vera búin að ferð­ast hring í kringum sól­ina á síð­ast­liðnum 365 dögum. Hvort það er veit ég ekki.

Síld­ar­gestir eru svo kvaddir með flug­elda­sýn­ingu og halda heim.

Undir öllum eðli­lega kring­um­stæðum þá ætti ég að vera að und­ir­búa mat­inn og gera allt sem honum fylgir en ég hef búið svo vel síð­ast­liðin 11 ár að tengdapabbi er kokkur sem sér alger­lega um mat­inn þannig að ég get eytt allri minni orku og tíma í að und­ir­búa mig bæði lík­am­lega og and­lega fyrir kvöldið. Tengdapabbi er ekk­ert sér­stak­lega hrif­inn af því að fá aðstoð í eld­hús­inu en mér finnst gott að spyrja hann út í hitt og þetta varð­andi mat­inn, hvað hann er að gera núna og á hvaða hita­stigi á þetta að vera os.frv. En ég geri það bara til að láta honum líða eins og ég sé að gera eitt­hvað gagn sem ég er svo sann­ar­lega ekki að gera. Ég hef fengið beiðnir um að vaska upp sam­hliða elda­mennsk­unni sem ég svara nú oft­ast ját­andi en á gamlárs­kvöld kemur það ekki til greina. Það er ekki hluti af ritúal­inu.

Á meðan við borðum mat­inn þá get ég ekki hugsað um annað en brenn­una og að koma mér þangað sem fyrst að sjá vel dúð­aða örygg­is­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar tendra brenn­una. Ég er oft­ast mjög fljótur að borða og er varla búinn að kyngja síð­asta munn bit­anum þegar ég vill fara að koma mér út. Þar sem ég bý í Hafn­ar­firði í dag þá þarf að leggja af stað tím­an­lega. Við erum oft­ast mætt á brenn­una rétt áður að hún er tendruð og þar hittir maður mikið af fólki sem maður hittir öllu jafna ekki nema ein­ungis á þessum vett­vangi. Það er það ég elska mest við þessa brennu. Svo eftir að maður hefur heilsað þessum helstu þá er byrjað að leita að feðgum (þið vitið hverjir þið eruð) sem halda alltaf á kon­íakspela og gefa öllum sem þiggja staup eða tvö sem ylja manni. Eftir flug­elda­sýn­ing­una er haldið heim í dess­ert og sett sig í stell­ingar fyrir ára­mótaskaupið. Ára­mótaskaupin eru jafn góð og þau eru mörg, sum slá í gegn og önnur ekki. En ég hef alltaf gaman af þeim og sér­stak­lega lög­unum í lokin. Þegar lagið klár­ast þá er spenn­ing­ur­inn kom­inn í hámark.

Þá er farið að klæða sig, setja á sig örygg­is­gler­augu og ná í sprengj­urnar. Árinu er svo lokið með því að sprengja flug­elda, skála með sínum heittelsk­uðu og fagna nýju ári og öðrum hring í kringum sól­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur