Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Styrkár Hallsson Sál­fræð­ing­ur­inn segir lyk­il­at­riði að bera umhyggju fyrir sjálfum sér í streng­ingu ára­móta­heita, frekar en að drífa sig áfram með skömm. Mynd: Golli

Rétta og ranga leiðin í áramótaheitum

Ára­móta­heit geta orðið eitruð þegar þau byggja á skömm, hörku eða óraun­hæfum vænt­ingum. Sál­fræð­ingur mælir með að koma fram við sjálfan sig eins og góðan vin.

Margir strengja ára­móta­heit svo sem í tengslum við hreyf­ingu og matar­æði. Allt er best í hófi og í sumum til­fellum getur fólk orðið fyrir von­brigðum þegar árangur næst ekki og ekki er hægt að fylgja ára­móta­heit­inu. Styrkár Hallsson sál­fræð­ingur segir að sjálfsum­hyggja og mildi sé mik­il­vægur hlekkur í mark­miðum almennt en dóm­harka í eigin garð geti gert það að verkum að fólk gefst upp og hættir að reyna.

Ára­móta­heit geta verið sak­laus og hjálp­leg fyrir suma en þau geta líka hæg­lega reynst vafasöm þegar þau byggja á skömm, dóm­hörku eða óraun­hæfum vænt­ingum. Þau geta auð­veld­lega aukið á sam­an­burð við aðra, óánægju með lík­amann og þá til­finn­ingu að við­kom­andi eigi að breyta sér jafn­vel þótt það sam­ræm­ist ekki gildum eða þörfum við­kom­andi.

Hvetjandi og styðjandi

Styrkár Hallsson, sál­fræð­ingur hjá Sál­fræð­ing­arnir ehf., telur að ára­móta­heit teng­ist að ein­hverju leyti þeim tíma­mótum sem verða í lífi fólks og virð­ast kalla á þörf fyrir að gera breyt­ingar. Slík tíma­mót geta þá átt við um ára­mót en einnig aðra lífs­við­burði svo sem í kringum afmæli, brúð­kaup eða eftir stórar breyt­ingar í líf­inu sem geta skapað línu á milli „gamla lífs­ins“ og ein­hvers konar „nýs upp­hafs“.

„Ég held að fólk sé oftar en ekki að fjar­lægja sig frá ein­hverju sem því fannst fara miður eða fannst ekki ganga nógu vel. Þetta getur snúið að ein­hverju sem það upp­lifir sem von­brigði en einnig eitt­hvað sem það vill bæta. Þannig að ég held að ára­móta­heit snú­ist gjarnan um það að fólk er að end­ur­spegla eitt­hvað mis­ræmi í því sem er í líf­inu núna eða hefur verið og því hvernig það vill að lífið sé í fram­hald­inu.“

Hvetjandi og styðjandi

Styrkár segir að sjálfsum­hyggja og mildi sé almennt mik­il­vægur hlekkur í mark­miðum af því að dóm­harka í eigin garð gerir það oft að verkum að fólk gefst upp og hættir að reyna.

„Niðurrif og dóm­harka geta einnig hæg­lega ýtt undir „svart­hvítan hugs­un­ar­hátt“ sem leiðir til þess að þegar illa gengur þá afskrifar fólk jafn­vel allt og finnst ára­móta­heitið ónýtt og hættir að reyna. Afleið­ingin af því geta verið nið­ur­rifs­hugs­anir og von­brigði sem jafn­vel ýta manni lengra frá því að reyna að ná settu mark­miði. Þetta getur jafn­vel orðið að víta­hring óraun­hæfra mark­miða, frest­unar og sjálfs­nið­ur­rifs. Gott er að hafa í huga að við erum í grunn­inn frekar ófull­komnar verur; við erum öll tak­mörkuð að ein­hverju leyti og það getur ýmis­legt komið upp á í líf­inu. Þannig að ég held að það sé mik­il­vægt að fólk hugsi meira um það sem er hvetj­andi og styðj­andi gagn­vart sjálfu sér. Maður getur spurt sig hvernig „myndi ég hvetja góðan vin áfram“, lík­lega ekki með nið­ur­rifi og skömm heldur með hvatn­ingu og sveigj­an­leika fyrir mis­tökum við­kom­andi.“

Styrkár seg­ist enn­fremur halda að þegar komi að umræðu um ára­móta­heit og ef fólk er að velta því fyrir sér að strengja ára­móta­heit þá sé einnig mik­il­vægt að horfa til þess hvað sé á valdi þess sjálfs. „Líðan er til dæmis ekki alltaf vilja­stýrð að öllu leyti þannig að fólk sem er til dæmis að glíma við kvíða getur verið að setja sér ára­móta­heit um að líð­anin verði betri eða það ætli sér að losna undan kvíð­anum. En stundum eru hlutir eða aðstæður ekki alveg fylli­lega á okkar valdi og ýmis­legt getur gerst í líf­inu eins og áföll sem geta sett strik í reikn­ing­inn þegar fólk er að reyna að vinna að ein­hverjum mark­miðum. Ára­móta­heit geta þá til að mynda aukið jafn­vel á sjálfs­á­sak­anir hjá fólki sem glímir við geð­ræn vanda­mál, ýtt undir skömm ef líðan batnar ekki og því líður eins og því hafi mis­tek­ist. Ára­móta­heit í slíkum til­fellum ættu þá kannski frekar að snúa að því „hvernig get ég betur hlúð að mér“ svo sem að setja mér ára­móta­heit um að biðja um aðstoð eða leita mér hjálpar þegar ég þarf þess.“

Ára­móta­heit snú­ast ekki endi­lega bara um hegðun heldur sjálfs­mynd og gildi eins og Styrkár nefndi - að vinna að bættu lík­am­legu og and­legu heil­brigði, vera skipu­lagð­ari og vinna að jákvæð­ara hug­ar­fari eða vera meira til staðar fyrir aðra.

Sveigjanleiki og samkennd að leiðarljósi

„Þótt að eitt­hvað gangi ekki eins og við­kom­andi hafði séð fyrir sér þá er það ekki endi­lega ein­hver veik­leiki eða brestur. Það getur margt spilað þar inn í. Við erum öll mann­eskjur og maður ætti frekar að nálg­ast það af for­vitni og skoða hvað spil­aði inn í. Streita eða álag á öðrum sviðum getur til dæmis auð­veld­lega truflað önnur mark­mið. Þetta kemur beint inn á sveigj­an­leik­ann og mild­ina í eigin garð. Margir mistúlka það að sýna sér mildi sem eitt­hvað nei­kvætt eða að maður sé að gefa sér leyfi. Þeir gleyma því að undir mildi eða sam­kennd í eigin garð fellur nefni­lega sjálfs­virð­ing, að sjá það mann­lega í eigin hegðun, gang­ast við og að hvetja sig áfram eins og góðan vin.“

„Streita eða álag á öðrum sviðum getur til dæmis auð­veld­lega truflað önnur mark­mið“

Gott er ef ára­móta­heit hafa ein­hvern aðdrag­anda og sé und­ir­búið. „Þess vegna held ég að það sé heil­brigð­ara og meiri skyn­semi í að ára­móta­heit miði að ein­hverjum gildum og ein­hverju sem við­kom­andi vill bæta sig í í líf­inu og að meiri áhersla sé lögð á líð­an­ina sjálfa heldur en ein­hverja loka­út­komu. Þannig að í stað­inn fyrir að ein­hver seg­ist ætla að grenn­ast eða bæta á sig vöðvamassa þá gæti við­kom­andi frekar sagst ætla að styrkja lík­amann með nær­ingu og hreyf­ingu. Það hljómar öðru­vísi og dregur kannski úr skömm og býður upp á aðeins meiri sveigj­an­leika.“

Umræðan skiptir máli

Styrkár neitar því ekki að ára­móta­heit geta verið böl. „Þetta er kannski ekki vanda­mál í sjálfu sér en þau verða klár­lega vara­söm þegar þau byggja til dæmis á skömm, hörku eða óraun­hæfum vænt­ingum. Þau geta aukið á sam­an­burð við aðra, óánægju með lík­amann og þá til­finn­ingu að við­kom­andi eigi að breyta sér jafn­vel þótt það sam­ræm­ist ekki gild­unum eða þör­f­unum.“

Umræðan um að koma sér í form sprettur upp eftir jól og í kringum ára­mót. „Þetta er ekki bara á Íslandi heldur er þetta líka þekkt fyr­ir­bæri erlendis. Þetta magnar upp sam­fé­lags­legan þrýst­ing. Ég held að við sem sam­fé­lag gleymum því mjög oft að sam­tal um ára­móta­heit og kannski mark­mið almennt getur verið við­kvæmt og ekki síst þegar þetta snertir þætti sem eru oft hlaðnir skömm og kalla á sam­an­burð og jafn­vel tengj­ast per­sónu­legri reynslu. Mér finnst skipta máli hvernig sam­fé­lagið, fjöl­miðlar og bara fólk almennt nálg­ast þessa umræðu og að hún sé sett fram af meiri næmni fyrir því að við getum öll haft ein­hverja reynslu þar sem þetta getur haft áhrif á okkur.“

Það getur til dæmis myndað þrýst­ing ef fólk er spurt hvort það ætli ekki að strengja ára­móta­heit varð­andi ákveðin atriði. „Ára­móta­heit snú­ast mjög oft um þyngd og ekki þarf að fara nánar út í hvernig það getur búið til óheil­brigða umræðu og áherslur í sam­fé­lag­inu. Þau geta líka snú­ist um önnur við­fangs­efni sem geta reynst við­kvæm svo sem ef ára­móta­heit snúa að fjár­málum en það getur snert á skömm, félags­legum sam­an­burði og ýtt undir kvíða hjá fólki í erf­iðri stöðu. Það sem er kannski hvetj­andi hjá einum gæti auð­veld­lega valdið van­líðan hjá öðrum og virkað sem ein­hvers konar kveikja fyrir nei­kvæðar hugs­anir og van­líðan.

Það breytir því ekki að auð­vitað höfum við frelsi til þess að setja okkur þau mark­mið sem við viljum og að tjá það við fólkið okkar opin­skátt. Það getur líka skapað með­byr og virkað hvetj­andi. Engu að síður þurfum við sem sam­fé­lag að fara var­legar í þetta. Ára­móta­heit geta búið til pressu og ýtt undir ein­hver óheil­brigð við­mið í þeim efnum.“

Styrkár bendir á að í sumum til­fellum geta ára­móta­heit farið í hina átt­ina svo sem þegar við­kom­andi ætlar að hreyfa sig minna, fara sér hægar og taka sér tíma til að slaka á, eiga fleiri stundir með mak­anum og draga úr álagi í vinnu. „Ára­móta­heit þurfa ekk­ert endi­lega að vera árang­urs­drifin og í átt­ina að því að ná ein­hverju tak­marki eða eign­ast pen­ing eða grenn­ast. Öfgar eru sjaldn­ast til þess fallnar að ná yfir langan tíma.“

Gildi mikilvæg

Sjálfur seg­ist Styrkár ekki strengja ára­móta­heit. „Ég reyni meira að fylgja ákveðnum gildum sem mann­eskja svo sem að vera góð mann­eskja. Reyni að láta gott af mér leiða og vera sann­gjarn, heið­ar­legur og gott for­eldri. Þannig að ég reyni alla jafna að hafa þau gildi að leið­ar­ljósi en hef á sama tíma sveigj­an­leika fyrir því að vera mennskur, geta gert mis­tök eins og aðrir og vera ófull­kom­inn. Það alla­vega hentar mér betur en að gera þetta að ein­hverjum heitum á tíma­mótum,“ segir hann.

„Mér finnst vera svo margt jákvætt við orðið gildi. Þau bein­ast oft einmitt að ein­hverju sem við viljum temja okkur út lífið; þetta er ekki endi­lega mark­mið sem við náum. Þetta er eitt­hvað sem ég vil hafa að leið­ar­ljósi svo lengi sem ég er til.“

Styrkár véfengir með þessu gagn­semi ára­móta­heita að ein­hverju leyti. „Það þurfa ekki að vera ára­mót til að ætla að gera ein­hverjar breyt­ingar til hins betra í líf­inu. Það getur komið að gagni að fara til sál­fræð­ings eða tala við fólk sem við­kom­andi treystir og nota með­byr­inn og finna leið­irnar. Ég held að það sé góður punktur að lokum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina