Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svavar Knútur hjólar í pólitíska vindhana

„Ég hef sjálfur margoft lent í hund­leið­indum frá fólki sem ég á víst „að vera í liði með“.“

Svavar Knútur hjólar í pólitíska vindhana
Svavar Knútur Tón­list­ar­mað­ur­inn er lítt hrif­inn af póli­tískum vind­hönum Mynd: Instagram-skjáskot

Tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur Krist­ins­son gagn­rýnir harð­lega þá sem snúi baki við grunn­gildum mann­rétt­inda og jafn­ræðis vegna óánægju eða átaka á sam­fé­lags­miðlum. Í löngum og hrein­skilnum pistli á Facebook segir Svavar slíka stefnu­breyt­ingu bera vott um að póli­tísk sann­fær­ing hafi aldrei verið djúp­stæð.

„Ef mann­eskja hoppar alger­lega um póla í pólítík og hættir að finn­ast hinsegin fólk eiga skilið sömu rétt­indi og annað fólk, jafn­rétti mik­il­vægt, hæl­is­leit­endur eiga mann­rétt­indi, mann­rétt­indi algild, gróð­ur­húsa­á­hrifin mik­il­vægt mál­efni, umhverf­is­mál almennt mik­il­væg, ójöfn­uður alvar­legt vanda­mál og stríðs­glæpir Ísraels í Palest­ínu grafal­var­legt mál – og byrjar að ala á hatri, sam­sær­is­kenn­ingum, mann­fyr­ir­litn­ingu og sundr­ungu í sam­fé­lag­inu okkar – af því eitt­hvað pirr­andi, skoð­a­naglatt og hávært bleik­hært lið var með leið­indi á sam­fé­lags­miðlum, þá ætla ég að gefa mér að pólítísk sann­fær­ing við­kom­andi hafi ekki verið sér­stak­lega rót­föst fyrir,“ skrifar Svavar.

Hann segir að sjálfur hafi hann ítrekað orðið fyrir leið­indum frá fólki sem telji sig standa honum nærri póli­tískt, en slíkt hafi aldrei orðið til þess að hann efað­ist um grunn­gildi sín.

„Ég hef sjálfur margoft lent í hund­leið­indum frá fólki sem ég á víst „að vera í liði með“. Fólki sem er líka vinstra megin í líf­inu en vill svo til að er líka bull­andi ein­elt­is­ger­endur. Það bara kemur fyrir. Maður bara heldur áfram og lætur ekki eins og eitt­hvað fjand­ans fórn­ar­lamb. Egóið mitt er ekki mik­il­væg­ara en mann­rétt­indi eða fram­tíð barn­anna okkar,“ segir hann.

Svavar tekur sér­stak­lega fram að ófull­kom­leiki ein­stak­linga breyti engu um gildi mál­efn­anna sjálfra.

„Ég er ekki full­kom­inn og ég þarf ekki að vera full­kom­inn. Mig langar ekki að vera full­kom­inn. Þannig upp­á­komur hafa ein­fald­lega ekk­ert að gera með sann­fær­ingu mína um að mann­rétt­indi séu algild og mér dettur ekki í hug að hoppa yfir í alger­lega veru­leikafirrtan pólítískan félags­skap bara af því ein­hverjir ruglu­dallar vinstra megin á róf­inu fara í taug­arnar á mér.“

Í færsl­unni notar hann sterk orð um þá sem, að hans mati, láti pirr­ing og óþol ráða póli­tískri afstöðu sinni.

„Fólk sem hoppar á mann­fyr­ir­litn­ing­ar­vagn­inn á þennan hátt er ein­fald­lega vind­hanar og ekk­ert annað,“ skrifar hann og hvetur fólk til sjálfs­skoð­unar:

„Ef það sem heldur þér frá því að standa með ein­földum sann­leika lífs­ins er óþol þitt á ein­hverjum blómál­fum, trú­badora­hobbitum og hippum, þá er kannski verð­ugt að horfa aðeins inn á við og spyrja þig af hverju þér stendur svona mikil ógn af fólki sem þú lítur svona niður á. Og kannski bara af hverju þú lítur niður á fólk sem er öðru­vísi en þú, til að byrja með. Væri ekki bara miklu næs­ara að geta átt vini sem eru alls konar og standa saman til að gera heim­inn betri fyrir okkur öll?“

Í lok færsl­unnar ítrekar Svavar nokkur lyk­il­at­riði sem hann segir ekki umdeil­an­leg póli­tísk smekks­at­riði heldur grund­vall­ar­sann­leika.

„Mann­rétt­indi eru algild. Vaxandi ójöfn­uður veldur mýgrút af öðrum vanda­málum í sam­fé­lag­inu. Inn­flytj­endur eru full­gilt fólk. Araba­hatur og and-semít­ismi eru sami hlut­ur­inn,“ skrifar hann og bætir við að fólk ætti að velta því fyrir sér hvers vegna sum ný orð fari í taug­arnar á því en önnur ekki.

„Ef orðið „kynsegin“ fer í taug­arnar á fólki af því það er eitt­hvað nýtt og skrýtið, en orðið „neyslu­hlé“ fer ekki í taug­arnar á því. Þá þarf fólk aðeins að horfa í eigin barm. Því annað þess­ara orða styður við mennsk­una en hitt er and­styggi­leg og stra­tegísk eyði­legg­ing á sammann­legum gæðum.“

Hann lýkur pistl­inum á mild­ari nótum, óskar fólki gleði­legs árs og bætir við léttum eft­ir­mála þar sem hann segir Ára­mótaskaupið hafa verið „almennt bara mjög fínt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum