Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ragga nagli varar við „földum faraldri“

„Lækn­ingin við ein­mana­leika er sam­fé­lag“

Ragga nagli varar við „földum faraldri“
Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir Viðtal við Röggu nagla er í nýjasta tölu­blaði Vikunnar Mynd: Sunna Gautadóttir

Sál­fræð­ing­ur­inn og einka­þjálf­ar­inn Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, segir ein­mana­leika vera eitt alvar­leg­asta heilsu­vanda­mál sam­tím­ans, vanda­mál sem fáir þori að tala um vegna skammar. Í við­tali við Vikuna fjallar hún ítar­lega um hvernig minnk­andi mann­leg sam­skipti hafi djúp­stæð áhrif á bæði and­lega og lík­am­lega heilsu fólks.

„Ein­mana­leiki er mjög falið vanda­mál því fólk talar ekki um að það sé ein­mana, því fylgir skömm. Við erum í mun minni mann­legum tengslum,“ segir Ragga og bendir á hvernig sjálf­virkni­væð­ing dag­legs lífs hafi smám saman grafið undan raun­veru­legum sam­skiptum.
„Ein­mana­leiki er mjög falið vanda­mál því fólk talar ekki um að það sé ein­mana, því fylgir skömm. Við erum í mun minni mann­legum tengslum. Til dæmis í stað­inn fyrir að hringja og panta pizzu þá pöntum við hana á net­inu. Við tölum ekki einu sinni við mann­veru. Það er allt orðið svo sjálf­virkt. Við þurfum ekki að fara í búð­ina, við getum bara pantað mat á net­inu. Og ef við förum í mat­vöru­búð­ina þá erum við ekki einu sinni að tala við mann­veru á kassa því við förum á sjálfs­af­greiðslu­kass­ann. Mannleg sam­skipti og tengsl eru orðin svo miklu minni en þau voru og þetta hefur áhrif á okkar lík­am­legu- og and­legu heilsu.“

Fjallkona með skýr skilaboð

Ragga var fjall­kona á þjóð­há­tíð Íslend­inga í Kaup­manna­höfn síð­asta sumar, þar sem hún nýtti tæki­færið til að beina kast­ljós­inu að ein­mana­leika, sem hún segir marga sér­fræð­inga telja vera orð­inn að far­aldri. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að sam­fé­lags­miðlar væru í vax­andi mæli að koma í stað raun­veru­legra tengsla.

„Sam­fé­lags­miðla­notkun er að koma í stað­inn fyrir að tengj­ast frekar í raun­heimum og fá yfir okkur vellíð­un­ar­horm­ónin serótónín, oxytósín og dópamín, en með þeim styrkjum við „félags­vöðvann“. Hann styrk­ist með því að lesa í lík­ams­tján­ingu, heyra tón tungu­máls­ins, nota radd­böndin í stað­inn fyrir þuml­ana og mynda augn­sam­band.“

Í ræð­unni fjall­aði Ragga einnig um hvers vegna ein­mana­leiki sé svo skað­legur, og hvað sé til ráða.

„Lækn­ingin við ein­mana­leika er sam­fé­lag. Að til­heyra. Að vera til þjón­ustu og hjálpa öðrum. Að ein­hver sjái okkur og hlusti á okkur. Þetta eru grunn­fé­lags­þarfir manns­ins.“

Hún hvatti fólk til að end­ur­meta for­gangs­röðun sína:

„Kjósum tengsl fram yfir tjákn. Kjósum sam­fé­lag fram yfir Snapchat. Kjósum augn­sam­band fram yfir Messen­ger og kjósum félags­starf fram yfir Facebook.“

Líffræðileg áhrif einangrunar

Ragga útskýrir að félags­leg nánd sé ekki aðeins til­finn­inga­leg heldur líf­fræði­leg nauð­syn. Hormón eins og oxytósín og serótónín losna í mann­legum sam­skiptum og stuðla að vellíðan, minni bólgum og betri heilsu.

„Að vera ein­mana er streitu­á­stand og það hefur marg­vís­leg nei­kvæð áhrif á lík­am­lega og and­lega heilsu eins og hærri hjart­slátt, blóð­þrýst­ing og veik­ara ónæm­is­kerfi. Við erum einnig með minni hug­ræna getu og erum í meiri áhættu á að þróa með okkur Alzheimer ef við erum ein­mana og mikið ein­angruð.“

Hún segir ein­mana­leika vera dýpstu ógn sem mann­eskjan upp­lifir:

„Það að vera ein­mana er mesta streita sem mann­skepnan upp­lifir. Því það þýddi fyrir okkur skyndi­legur dauði. Við gátum ekki lifað af ef við vorum ein. Við þurfum hjörð­ina til að lifa af, og þetta er heilsu­mál sem eng­inn er að tala um því þessu fylgir mikil skömm.“

Þurfum öll að finna okkar takt

Að lokum und­ir­strikar Ragga að fólk sé ólíkt, sumir þurfi meiri félags­lega örvun en aðrir

„Við þurfum öll að finna okkar takt.“

Ragga nagli heldur fjölda fyr­ir­lestra á Íslandi á næst­unni og segir áhug­ann á efn­inu sýna að þörfin fyrir opna umræðu um ein­mana­leika sé brýnni en nokkru sinni fyrr.

Hægt er að lesa allt við­talið við Röggu nagla í nýjasta tölu­blaði Vikunnar, sem kemur út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur