Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr vill reisa klaustur í Viðey

Vill sjá blóm­strandi sam­fé­lag í eynni á ný

Jón Gnarr vill reisa klaustur í Viðey
Úr Viðey Jón Gnarr er með hug­myndir um fram­tíð Viðeyjar Mynd: Shutterstock

Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, veltir fyrir sér fram­tíð­ar­skipu­lagi Viðeyjar og hvort þar megi byggja upp fjöl­skyldu­vænt sam­fé­lag með skýra teng­ingu við sögu og nátt­úru eyj­ar­innar. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti nýverið.

Jón segir skipu­lags­mál vera meðal flókn­ustu við­fangs­efna sam­fé­lags­ins, þar sem saman fari búseta, sam­göngur, menn­ing­ar­legar áherslur, fag­ur­fræði, and­leg líðan og lýð­heilsa. Hann bendir á að skipu­lags­mál séu bæði fag­leg fræði og póli­tískt sátta­mál og vísar til eigin reynslu af vinnu við Aðal­skipu­lag Reykja­víkur 2014.

Þing­mað­ur­inn segir að nokkur atriði í skipu­lags­málum borg­ar­innar hafi hann ekki sett sig nægi­lega vel inn í á sínum tíma, en greinir frá því að hann sé nú að vinna grein um þau mál sem birt­ist síðar á Eyjunni. Í milli­tíð­inni vilji hann varpa fram hug­myndum sér­stak­lega varð­andi Viðey.

Í færsl­unni rekur Jón langa og merka byggða­sögu Viðeyjar sem nær aftur til land­náms. Þar hafi verið reist klaustur árið 1225 og kirkja, lík­lega staf­kirkja að norskri fyr­ir­mynd, sem stóðu fram að siða­skiptum. Í eyj­unni hafi í gegnum aldir verið búseta, búskapur og atvinnu­starf­semi.

Hann segir sig hafa sótt inn­blástur til eyja­byggða við strendur borga í Noregi og í Svíþjóð, þar sem sam­fé­lög byggja gjarnan á menn­ing­ar­sögu eða hug­mynda­fræði á borð við vist­byggðir. Slík svæði ein­kenn­ist oft af tak­mark­aðri bíla­um­ferð, fjöl­skyldu­vænu skipu­lagi og nálægð við nátt­úru, segir Jón.

Jón bendir jafn­framt á að á Íslandi megi finna sam­bæri­legar byggðir í Flatey og Hrísey og veltir því upp hvort svipuð nálgun gæti átt við í Viðey. Hann lýsir hug­mynd um „þorp í borg, þar sem litlum og stórum og lit­ríkum gam­al­dags timb­ur­húsum, með stórum lóðum væri dritað nokkuð óskipu­lega niður.“ Jón spyr svo: „Gæti það ekki orðið svo­lítið skemmti­leg við­bót við borg­ina?“

Að lokum nefnir hann þá hug­mynd að jafn­vel mætti end­ur­reisa klaustrið og kirkj­una sem hluta af slíkri upp­bygg­ingu.

„Það mætti jafn­vel end­ur­reisa klaustrið og kirkj­una?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum