Hildigunnur Svavarsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa embætti forstjóra að nýju að loknum fimm ára skipunartíma hennar en sá átti að enda í lok ágúst.
Akureyri.net greinir frá þessu en Hildigunnur lét starfsfólk vita af málinu með tölvupósti fyrr í dag.































Athugasemdir