Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Josie getur loksins sofið

Skoski verk­efna­stjór­inn Josie Anne hefur fundið lausn­ina við svefn­vand­ræðum sínum

Josie getur loksins sofið
Josie Anne Gaitens Josie Anne hefur end­ur­heimt ork­una Mynd: Aðsend

Skoski verk­efna­stjór­inn Josie Anne Gaitens snýr aftur í hlað­varps­þátt­inn Sofum saman en hún hefur lengi glímt við svefn­vanda­mál en nú hefur hún fundið lausn­ina.

Josie Anne er búin að sofa illa í mörg ár. Ástæðan er að kjálk­inn er ekki nógu stór fyrir tung­una hennar, hún hrýtur mikið og svefn­vél hjálpar ekki. Þannig að hún hefur verið að leita að lausn. Í þætt­inum segir hún hvernig hrotu­gómur hefur hjálpað henni mikið.

„Ég hef verið að prófa hrotu­góm­inn og það var pínu erfitt að meta þetta strax, þar sem ég hafði ekki skýra hug­mynd um hvað „full­kom­inn svefn“ væri. Ég held að eitt sem ég bjóst við var að ég myndi prófa hrotu­góm­inn og vakna strax eins og ný mann­eskja. En auð­vitað, eins og með allt annað, þá tekur tíma að venj­ast þessu.

Hrotu­góm­ur­inn þarf að fara í heitt vatn og svo mót­ast hann að lögun tann­anna. En það er samt smá breyt­ing að fara að sofa með eitt­hvað í munn­inum. Fyrstu nótt­ina sem ég próf­aði hann vakn­aði ég um morg­un­inn og hann lá bara á kodd­anum við hlið­ina á mér. Ég hafði tekið hann úr ein­hvern tím­ann um nótt­ina og mundi ekk­ert eftir því. Svona var þetta fyrstu næt­urnar: Ég var með hann í smá stund, vakn­aði svo við óþæg­indi og tók hann út. Það tók nokkrar nætur að venj­ast þessu.

Ég hrýt en sef þó með lok­aðan munn, svo að ég anda í gegnum nefið. En með gómnum get ég ekki haft munn­inn lok­aðan. Það skiptir máli að und­ir­búa allt fyr­ir­fram og hafa góm­inn kláran, setja vel af vara­salva og hafa hann svo við hönd­ina þannig að þegar ég finn að ég er farin að dotta þá set ég hann upp í mig. Það er ekki gott að liggja með hann í munn­inum lengi á meðan ég er að reyna að sofna og verða æ með­vit­aðri um hann.

Ég próf­aði þetta nokkrum sinnum en var ekki alveg til­búin strax. Svo ákvað ég bara að nota hann í heila viku, punktur. Á sama tíma hélt ég svefn­dag­bók og það hjálp­aði ótrú­lega mikið, bæði sem hvatn­ing og líka til að nálg­ast þetta eins og verk­efni eða til­raun.“

Hrotuapp

Josie Anne upp­götv­aði smá­forrit sem hefur hjálpað henni mikið hvað varðar svefn­inn.

„Það sem hafði hvað mest áhrif á mig var þegar ég sótti app sem mælir hrotur. Það heitir Snore Tracker.

Fyrsta skiptið sem ég sá mun­inn hélt ég að þetta væri bara til­viljun. Appið gefur manni svona hrotu­stig, og ég var að fara úr 60 til 90, stundum 100, niður í núll og það gerð­ist bara strax! Það varð síðan mín aðal­hvatn­ing til að halda áfram því að þetta var greini­lega að virka.

Og það sem er líka áhuga­vert er að þetta kveikir löngun til að skoða hvað fleira ég get gert til að bæta svefn­inn. Þetta er ekki gómur sem er sér­smíð­aður af tann­lækni, en sá mögu­leiki er líka alveg í boði. Og þar sem þetta virkar, þá virð­ist það skyn­sam­leg fjár­fest­ing og ég vil skoða það nánar.“

Jöfn orka

Josie Anne seg­ist hafa end­ur­heimt ork­una og ein­beit­ing­una, með betri svefni.

„Ég held að þetta hafi líka mikil áhrif á ein­beit­ing­una yfir dag­inn. Ég hef eig­in­lega ekki fundið þörf fyrir að leggja mig síðan ég byrj­aði að nota góm­inn. Ég er bara með jafna, góða orku yfir dag­inn. 

En mér finnst við vita svo ótrú­lega lítið um svefn og það er líka það sem gerir hann svona áhuga­verðan. Við hugsum oft um svefn sem líf­fræði­lega starf­semi, en hann er líka mjög menn­ing­ar­bund­inn. Svefn­venjur okkar hafa breyst. Ég held að það hafi verið rétt fyrir iðn­bylt­ing­una, eða í kringum þann tíma, þegar það var mjög algengt að fólk svæfi í tveimur lotum. Þá sofn­aði fólk, vakn­aði síðan í nokkrar klukku­stundir, borð­aði oft litla mál­tíð, hitti aðra og átti sam­veru­stund, og fór svo aftur að sofa. En það er í raun stutt síðan. Og ég er alveg viss um að það væri full­komið svefn­mynstur fyrir suma sem þurfa núna að laga sig að allt öðru fyr­ir­komu­lagi.“

„Svefn er menningarlegt fyrirbæri“

Í hlað­varps­þætt­inum talar Josie Anne um svefn­þró­un­ina í gegnum tíð­ina og rifjar upp æskuminn­ingar tengdum svefni.

„Svefn er bæði menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri og ótrú­lega per­sónu­legt og teng­ist líka því hverjum við deilum rými með. Það er ekki svo langt síðan, bæði á Íslandi og Skotlandi, þaðan sem ég kem, að fjöl­skyldur sváfu allar í sama her­bergi, jafn­vel systk­ini saman í rúmi. Frænka mín talar um það þegar þau voru ung, hún er elst systk­ina föður míns og man mest frá æsku þeirra og hún man eftir ferðum þar sem þau fóru í frí með frænd­fólki og sváfu mörg saman. Fólki var bók­staf­lega þröngvað saman í lítið rými. Í dag finnst okkur þetta kannski skrítið, en þetta breytt­ist fyrir ekk­ert svo löngu síðan. Samt er eitt­hvað fal­legt og ljóð­rænt við það að deila rými með öðrum, náið og nota­legt.

Við höfum sofið hlið við hlið í þús­undir ára og þessi nánd, þessi sam­vera í svefni, end­ur­spegl­ast í ljóðum, bókum og listum. Þegar pabbi minn var ungur var heim­ilið þannig að það var bara eitt svefn­her­bergi og börnin sváfu í inn­byggðu rúmi í veggnum í eld­hús­inu. Þau voru þrjú og sváfu öll þar saman en for­eldr­arnir höfðu sitt her­bergi. Allt aðrir lífs­hættir en við þekkjum.

Ég á góðar minn­ingar frá æsku, til dæmis úr úti­legum eða þegar fjöl­skyldan svaf í litlum báti sem pabbi átti. Ég vakn­aði stundum um miðja nótt og heyrði að öll fjöl­skyldan var að hrjóta. Ég get ímyndað mér að það hafi ekki verið skemmti­legt að vera í næsta tjaldi eða báti við hlið­ina á okkur fjöl­skyld­unni.

Ég og systir mín fórum alltaf upp í rúm til mömmu og pabba ef við vökn­uðum, þau höfðu ekk­ert val. Þegar maður er nógu þreyttur nennir maður ekki að reka neinn í burtu, maður leyfir fólki bara að sofa. Þetta hefur áhrif á svefn­gæði en líka á sam­bönd og í raun á allt lífið. Þetta teng­ist allt.

Síðan ég byrj­aði að sofa betur hef ég fundið fyrir meiri ró, betri ein­beit­ingu og betri líðan. Ég sef samt ekki endi­lega lengur en sex til sjö tíma. Það er mitt með­al­tal en nú veit ég að ég get bætt gæðin og vil halda áfram að vinna í því. Mér líður eins og að það séu fleiri mögu­leikar en áður. Ég veit ekki nákvæm­lega hvert þetta leiðir mig en þetta er mjög góð til­finn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu