Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég hef oft verið hrópandi í eyðimörkinni“

Brynjar Níelsson opnar sig fyrir Sölva Tryggva

„Ég hef oft verið hrópandi í eyðimörkinni“
Brynjar Níelsson Brynjar er ekki allra Mynd: YouTube-skjáskot

Brynjar Níelsson segir ákveð­inn hóp fólks vilja stýra allri opin­berri umræðu og þeir sem séu ósam­mála þeim séu annað hvort að nota hat­urs­orð­ræðu eða vondar mann­eskjur. Brynjar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, er á leið­inni aftur í stjórn­mál. Að þessu sinni í borg­ar­málin. Hann segir mikla þörf á fólki í stjórn­mál sem vilji draga úr umsvifum hins opin­bera, auka frelsi ein­stak­lings­ins og fara betur með fé almenn­ings:

„Við sjáum það sem er að ger­ast í Evrópu, þar sem útgjöld til vel­ferð­ar­mála eru í engu sam­hengi við fram­leiðslu. Þetta er ekki sjálf­bært. Vinstrið hefur haft völdin í Evr­ópu­sam­band­inu síð­ustu 30 ár. Þróunin hefur verið þannig að það er bara verið að auka útgjöld rík­is­ins enda­laust. Oft í nafni mann­rétt­inda eða göf­ugra hluta. En núna er fólk að vakna upp við þann veru­leika að þetta er ekki sjálf­bært. Það vantar fram­leiðsl­una til að standa undir allri þessarri vel­ferð, reglu­verki og öðru sem kallar á enda­laus útgjöld hins opin­bera. Það eru varla nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í Evr­ópu­sam­band­inu, af því að umhverfið er svo íþyngj­andi. Það er alltaf verið að búa til nýjar stofn­anir og fleiri reglur og auka inn­grip hins opin­bera í alls konar hluti. Þetta er bara stjórn­semi, sem ég hef alltaf kunnað illa við. Alveg síðan ég var barn. Þetta er allt saman aðför að frelsi ein­stak­ling­ins. Sérhver ein­stak­lingur missir smátt og smátt gildi sitt og allt fer að snú­ast um kerfin,“ segir Brynjar og heldur áfram:

„Ég hef oft verið hróp­andi í eyði­mörk­inni, til dæmis í Covid-far­aldr­inum og fleiri málum þar sem það hefur kallað á óvin­sældir að standa utan við hina einu réttu skoðun. Það þarf að ræða alla þessa hluti og við þurfum að þora að velta við öllum steinum. Við getum ekki verið bara á sjálfs­stýr­ingu þegar kemur að útgjöldum hins opin­bera. Það á ekki að líð­ast lengur að stjórn­mála­menn sýni bara ábyrgð­ar­leysi þegar kemur að því hvernig er farið með almannafé. Það vantar kjarkinn til að þora að taka erf­iðar ákvarð­anir. Þó að manni verði hent út eftir kjör­tíma­bilið, þá þarf bara að hafa það ef ákvarð­an­irnar eru réttar. Vanda­málið í íslenskum stjórn­málum er kjark­leysi og stjórn­mála­menn eru upp til hópa allt of mikið að hugsa bara um sjálfa sig. ,,Ég vil ekki missa djobbið mitt” er hugs­unin. Okkur Sigríði Andersen var til dæmis nán­ast kastað út eftir að hafa haft aðrar skoð­anir en allir hinir í Covid far­aldr­inum og henni var bara nán­ast kastað út á hafs­auga. En í dag hlustar fólk á það sem hún hefur að segja og áttar sig á að málin voru kannski aðeins öðru­vísi en flestir töldu á þessum tíma. Í almanna­trygg­inga­kerf­inu hefur til dæmis nán­ast orðið veld­is­vöxtur og við þurfum að skoða það eins og marga aðra hluti, þó að það sé við­kvæm umræða. Ef þeim sem nettó greiða skatt heldur stöðugt áfram að fækka, þá erum við ekki lengur sjálf­bær og þá þurfum við að grípa til aðgerða. Aðrar þjóðir, eins og Danir og Norðmenn, hafa tekið mjög hart á öllu svindli á almanna­trygg­ina­kerf­inu þar. En þessa umræðu má ekki taka hér, af því að þá er maður sak­aður um að vera að ráð­ast á fólk sem stendur illa.“

Sölvi spyr Brynjar í þætt­inum hvort hann eigi ekki mun frekar heima í Mið­flokknum en Sjálf­stæð­is­flokknum eins og sakir standa miðað við mál­flutn­ing hans:

„Ég á mjög erfitt með að yfir­gefa sjálfs­stæðis-stefn­una og hef ennþá trú á henni. Ég tel hana vera mik­il­væga og þess vegna er mikil tregða í mér að gef­ast upp á henni. Núna þarf bara að eiga sér stað end­ur­nýjun og það þarf að finna fót­fest­una upp á nýtt.”

Í þætt­inum ræða Sölvi og Brynjar um grund­vall­ar­at­riði í stjórn­málum, eins og til dæmis hve mikil umsvif rík­is­ins eigi að vera, mik­il­vægi þess að kjós­endur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og fleira:

„Kerfið er að verða svo stórt og mikið að ein­stak­ling­ur­inn er að hverfa. Það er stöðugt verið að sauma meira að frelsi ein­stak­lings­ins og þess vegna er ekk­ert pláss fyrir fólk sem er með aðrar skoð­anir en þá einu réttu hverju sinni. Þá er það bara kallað hat­urs­orð­ræða eða upp­lýs­inga­óreiða. Rík­is­vélin verður að malla og fólk á bara að vera hlýðið. Ein­stak­ling­ur­inn, ég og þú og aðrir, þeir skipta engu máli lengur. Þeir eru bara tann­hjól í rík­is­vél­inni. Svo bætir það ekki úr skák að allir fjöl­miðl­arnir eru nán­ast rík­is­væddir með einum eða öðrum hætti, sem þýðir enn minna aðhald við ráð­andi öfl. Svo eru stjórn­mála­flokk­arnir líka rík­is­styrktir og rík­is­væddir. Það er annar angi af þessu,” segir Brynjar og heldur áfram:

„Manns­skepnan er í grunn­inn alltaf eins. Og þó að það hafi orðið miklar tækni­fram­farir og vel­ferð meiri, þá er lýð­ræðið alltaf reglu­lega í hættu af því að ákveðnir hópar vilja stýra öðrum og nota til þess ofbeldi ef út í það er farið. Svo eru allir sem eru ósam­mála bara kall­aðir hægri öfga­menn og þá þarf ekk­ert að ræða það frekar. Ég held að upp til hópa sé fólkið sem vill pína aðra í sömu skoð­anir hrein­lega stíflað af frekju. Það er í raun að beita sömu aðferðum og krakk­arnir sem lömdu aðra krakka með skóflum í sand­kass­anum og lögðu í ein­elti. Það að geta ekki sætt sig við að aðrir séu með aðra lífs­sýn og aðrar skoð­anir er sér­stök leið til þess að lifa. En ég trúi ekki öðru en að flest allt venju­legt fólk sjái hvers konar vit­leysa þetta er.”

Brynjar seg­ist ein­læg­lega þeirrar skoð­unar að umræða um hat­urs­orð­ræðu sé komin á mjög skrýtnar brautir.

„Mér finnst umburð­ar­lyndi orðið tals­vert minna en það var. Sú hugsun virð­ist vera orðin ríkj­andi að ef þú ert ekki sam­mála mér, þá sértu óvinur minn. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Við verðum að hafa rými til að vera stundum ósam­mála í frjálsu sam­fé­lagi. Hugtakið um hat­urs­orð­ræðu hefur verið víkkað svo svaka­lega að það á nán­ast að vera refsi­vert ef allir eru ekki á sömu skoðun og þú. Þetta er alltaf ákveð­inn hópur sem vill fá að eiga umræð­una og fá að ákveða hvað er hat­urs­orð­ræða og hvað ekki. Svo finnst þessu sama fólki alveg sjálf­sagt að ráð­ast á aðra ein­stak­linga á net­inu og spyr sig aldrei að því hvort það gæti verið hat­urs­orð­ræða. Þetta er ekk­ert nýtt af nál­inni og var gert í gömlu ráðs­stjórn­ar­ríkj­unum. Það að tala gegn stjórn­völdum og meiri­hlut­anum var þá land­ráð og þá var notað orðið hat­urs­orð­ræða eins og nú. Fyrsta skrefið var úti­lokun, svo var það fang­elsun og svo var það bara Síbería. Saga fas­ism­ans er saga af fólki sem í upp­hafi sagð­ist vera að berj­ast fyrir mjög göf­ugum mál­stað. En svo verður ofstop­inn bara meiri og meiri. Fólk hlýtur að sjá að sú þróun sem á köflum hefur verið í gangi er á margan hátt óhugn­an­leg ef hún fær að halda áfram og eng­inn stígur niður fæti.“

Brynjar mætti í þátt­inn með dollu af nikótín­púðum og Sölvi spurði hann út í notkun á þeim:

„Við köllum þetta nikótín­púða og ég er fík­ill verð ég að við­ur­kenna. Ég er það mik­ill fík­ill að ég fer alveg með tæpa dollu af þessu á dag. Þannig að ég er bara ník­ótín­fík­ill og verð að gang­ast við því. Ætli það séu ekki svona 20 púðar í dósinni, þannig að það er slatti. Ég get ekki látið þetta eiga sig, sér­stak­lega þegar ég er innan um fólk og í félags­legum aðstæðum. Ég reykti hér áður, en hætti því reglu­lega í 1-2 ár í senn. Ég get alveg hætt hlutum ef ég tek ákvörðun um það. Þá get ég staðið við það. En vand­inn er að koma sér í það að taka djúpa ákvörðun um að hætta þessu. Þegar ég var orð­inn þreyttur á lykt­inni og því sem fylgir reyk­ing­unum fór ég í tyggjó-ið, en mér fannst svo leið­in­legt að vera alltaf sítyggj­andi fyrir framan fólk, þannig að þá end­aði ég í púð­unum. En ég mætti alveg gjarnan gera minna af þessu.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur