Lögreglan í New York handtók tvo einstaklinga í gær eftir að „grunsamleg tæki“ fundust nálægt heimili borgarstjórans í New York-borgar
Talsmaður lögreglunar staðfesti í yfirlýsingu að tækin hefðu fundist í nágrenni við heimili borgarstjórans á meðan mótmæli stóðu yfir gegn íslam. Mótmælin voru skipulögð af íhaldssama áhrifavaldinum Jake Lang.
Ljósmyndir frá vettvangi sýna að eitt tækjanna var egglaga í laginu og vafið silfurlituðu límbandi. Á öðrum myndum má sjá einstakling halda á hlut sem gaf frá sér reyk áður en honum var að sögn kastað í átt að lögreglumönnum.
Myndir og myndbönd sem tekin voru á staðnum sýna einnig sama einstakling handtekinn af lögreglu.
Óljóst er hvort borgarstjórinn Zohran Mamdani eða eiginkona hans hafi verið heima þegar atvikið átti sér stað. Samkvæmt lögreglu urðu engin meiðsli í tengslum við málið.
Mamdani er fyrsti múslimski borgarstjóri New York-borgar og hefur orðið fyrir gagnrýni og fordómum síðan hann tilkynnti framboð sitt til embættisins á síðasta ári. Fyrr í vikunni bað útvarpsmaðurinn Sid Rosenberg opinberlega afsökunar eftir að hafa látið falla umdeild ummæli um borgarstjórann.
Rannsókn málsins stendur enn yfir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir