Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

Kleini kynnti versl­un­ar­rekstur en var strax kom­inn í rekstr­ar­vand­ræði árið áður. Hann hefur ekki staðið skil á árs­reikn­ingi.

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina
Kleini Er nú til heim­ilis á Húsavík, en sýndi íburð­ar­mik­inn lífs­stíl á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: Mynd: Instagram-skjáskot

Áhrifa­vald­ur­inn Kristján Einar Sig­ur­björns­son, sem gengur undir nafn­inu Kleini, hefur ekki staðið skil á árs­reikn­ingi á einka­hluta­fé­lagi sínu sem hann stofn­aði utan um kaup og sölu á hús­gögnum.

Greint var frá því í Smartland­inu á mbl.is haustið 2024 að Kleini hyggð­ist hefja versl­un­ar­rekstur. „Hús­gögnin sem verða í boði munu vera frá­brugðin því sem nú þegar er til á mark­aðnum á Íslandi. Við ætlum að leggja áherslu á fjöl­breyti­leika og nýj­ungar,“ sagði hann í við­tali við Smartland. „Opnun versl­un­ar­innar mun fara fram þegar mark­að­ur­inn hefur verið rýndur og greindur til að tryggja að vöru­fram­boðið mæti þörfum og óskum við­skipta­vin­anna,“ sagði hann.

Í fram­halds­frétt Smartlands­ins í des­em­ber sama ár kom fram að versl­unin héti Heim­il­is­heild og að Kleini ætl­aði ekki að leggja út fé við stofnun fyr­ir­tæk­is­ins.

„Það hefur tekið tíma að koma þessu af stað, því ég ákvað í byrjun að byggja þetta frá grunni án þess að leggja út krónu úr eigin vasa. Ég byrj­aði með eina vöru, gerði hana upp, seldi hana og keypti tvær vörur í stað­inn. Þannig hef ég smám saman byggt þetta upp – algjör­lega með vinn­unni minni og án fjár úr mínum vasa eða ann­ars. Því ég trúi því að ef maður leggur á sig vinn­una sjálfur þá skilar það sér,“ sagði hann.

Síðar í sama mán­uði kynnti versl­unin lag­er­hreinsun og virt­ist ein­göngu hafa til sölu not­aðar dýnur og stund­aði sam­keppni við Góða hirð­inn. Fleira hefur ekki birst frá versl­un­inni á sam­fé­lags­miðlum.

Kleini, sem sýndi oft tölu­verðan íburð á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars með mynd­bandi þar sem hann gaf unn­ustu sinni Porsche, sem fór strax á sölu í kjöl­farið, virt­ist þegar vera kom­inn í rekstr­ar­vanda árið áður en hann hóf rekstur versl­un­ar­innar.

Félagið að baki rekstr­inum, KLHB ehf, tap­aði 2,6 millj­ónum króna á fyrsta rekstr­ar­ár­inu, sem var árið áður en versl­unin opn­aði. Þá taldi það fram 2,8 millj­ónir króna í tekjur, en rekstr­ar­gjöld voru næstum tvö­falt meiri en tekj­urnar. Við­skipta­skuldir námu 5,4 millj­ónum króna.

Frekari upp­lýs­ingar fást ekki um rekstur félags Kleina. Hann hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2024, en lög og reglur kveðja á um að það skuli gert fyrir lok ágúst ár hvert, hvort sem rekstur er í félagi eða ekki. Er það á ábyrgð stjórnar og fram­kvæmda­stjóra, en Kleini er fram­kvæmda­stjóri og situr í stjórn.

Upp­haf­lega hét einka­hluta­fé­lag hans Kristján Einar ehf. og hafði þann til­gang að stunda útleigu inn­rétt­aðra sendla (Campera), kaup og sölu á skyldum vörum, rekstur fast­eigna og lána­starf­semi. Nafni þess var breytt í ágúst 2023 þegar fram kom að Kleini ætl­aði í rekstur með þáver­andi unn­ustu sinni, Hafdísi Björgu Krist­jáns­dóttur einka­þjálf­ara.

Hafdís steig fram í gær og greindi frá alvar­legu ofbeldi hans í hennar garð. Fleiri fyrr­ver­andi kærustur stigu fram í kjöl­farið. Þá var Kleini hand­tek­inn vegna rann­sóknar á kyn­ferð­is­broti á Akureyri um helg­ina, ásamt tveimur öðrum mönnum.

Þá hefur áður komið fram að Kleini var dæmdur fyrir ofbeld­is­fullt rán á Spáni, sem hann sagði sjálfur að hefðu verið „smá fyll­er­ísslags­mál“, en þar fór hann um ásamt öðrum manni og rændi 40 evrum af veg­far­anda, ógn­aði honum með egg­vopni, barði síðan mann og konu sem reyndi að hjálpa honum.

Ekki hefur náðst í Kleina vegna máls­ins og lög­maður hans í fyrra lík­ams­árás­ar­máli á Íslandi vill hvorki játa né neita að hann fari með mál hans í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara