Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kleini Frægð­ar­sól Kleina er sest. Mynd: Instagram

Ris og fall Kleina

Kristján Einar Sig­ur­björns­son, eða Kleini eins og hann kallar sig, hefur verið með þekkt­ustu áhrifa­völdum Íslands síðstu ár, ekki síst vegna ást­ar­sam­banda, þar sem ekki var allt sem sýnd­ist. Undir frægð­ar­sól­inni leynd­ist skugga­leg for­tíð og mein.

Áhrifa­vald­ur­inn Kristján Einar Sig­ur­björns­son eða Kleini eins og hann kallar sig, hefur síð­ustu ár verið einn umtal­að­asti maður lands­ins og hefur reglu­lega ratað á slúð­ur­síður fjöl­miðl­anna, meðal ann­ars fyrir ást­ar­sam­bönd sín og rík­mann­legan lífs­stíl sem stundum hefur vakið spurn­ingar.

Þá komst hann einnig í frétt­irnar þegar hann var sýkn­aður í Lands­rétti af lík­ams­árás árið 2021 og þannig snúið við dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem hann hafði fengið 2019. Þá sat hann inni í átta mán­uði á Malaga á Spáni fyrir alvar­legt brot, sem hann gerði sjálfur lítið úr og hélt áfram að njóta jákvæðrar athygli eins og ekk­ert hefði í skorist.

Kleini var einn þeirra þriggja manna sem hand­teknir voru á Akureyri í mars vegna hrotta­fengis kyn­ferð­is­brots á ungri konu. Lög­reglan hefur hins vegar hætt rann­sókn á mál­inu er varðar nauðgun en meint brot á kyn­ferð­is­legri frið­helgi hefur verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara að sögn lög­manns hinnar ungu konu.

Mannlíf fer nú yfir frægð­ar­sól Kleina og fall hans af stalli sem hann reisti sjálfur með hjálp fjöl­miðl­anna.

„Rómantískur“ sjómaður

Í jan­úar 2021 birt­ist for­síðu­við­tal við Kleina í kynn­ing­ar­blaði Frétta­blaðs­ins, Fólk, þar sem honum er lýst sem róm­an­tískum sjó­manni. Þá hafði hann hafið ást­ar­sam­band með Svölu Karítas Björg­vins­dóttur stór­söng­konu ári áður, en ald­urs­munur þeirra var tölu­verður eins og fyr­ir­sögn við­tals­ins vís­aði í: Ástin spyr ekki um aldur. „Það er eng­inn vafi á því að ég mun aldrei elska neina eins og ég elska Svölu. Í henni hitti ég sálu­fé­laga minn og ég trúi því að ef maður er hepp­inn, þá ger­ist slíkt bara einu sinni á lífs­leið­inni,“ segir Kleini í upp­hafi við­tals­ins en þar ræðir hann einnig um þá for­dóma sem mætti þeim vegna ald­urs­mun­ar­ins.

Kleini og SvalaUndir yfir­borð­inu kraum­aði meira en kom fram í fréttum.

Þá útskýrir hann gælu­nafnið Kleini en það ku hafa komið til vegna þess að hann stund­aði kleinu­stuld þegar hann bak­aði með ömmu sinni sem krakki. „Þegar ég var yngri átti ég það oft til að hjálpa ömmu Svönu að baka kleinur og segjum sem svo að ef við ætl­uðum að baka hund­rað kleinur varð hún alltaf jafn hissa þegar aðeins sjö­tíu kleinur skil­uðu sér úr bakstr­inum. Eftir að föð­ur­bróðir minn sá mig svo stela kleinum hægri, vinstri, ákvað hann að byrja að kalla mig Kleina og það bara fest­ist við mig.

Þegar Kleini var 19 ára eign­að­ist hann dóttur sem hann sagði hafa breytt lífi sínu til hins betra. „Dóttir mín er eitt það besta sem hefur komið fyrir mig og mig langar að eign­ast fleiri börn í fram­tíð­inni,“ sagði Kleini í við­tal­inu. Þar kemur einnig fram að hann hafi alist upp í miklum útgerð­arbæ, Húsavík, en þegar við­talið birt­ist hafði hann verið fimm ár á sjó í Reykja­vík en hann sagði sjó­inn „núll­stilla“ sig og „herða.“

Hégómafulli áhrifavaldurinn

Eftir að Kleini hóf sam­band með Svölu reis frægð­ar­sól hans hátt en hann var dug­legur að birta myndir af sér á Instagram, sem sýndi ákveð­inn flott­ræf­ils­hátt ef svo má kalla, rán­dýr föt, dýrar græjur og vöðva­stæltan og húð­flúraðan kropp­inn. Inn á milli birti hann ein­hvers konar grín þar sem hann var í aðal­hlut­verki.

Tæplega 7.500 manns fylgja honum á Instagram í dag, megnið af þeim ungt fólk sem oft dáð­ist oft að Kleina í athuga­semdum, ýmist að ásýnd hans eða fasi. Þá hefur hann í gegnum tíð­ina verið dug­legur að svara spurn­ingum í story á Instagram, þar sem hann svar­aði aðsendum spurn­ingum fylgj­enda sinna, allt frá spurn­ingum um ást­ar­mál hans til spurn­inga um útlitið.

Sagði ósatt um glæp sinn

Í mars 2022 var Kleini hand­tek­inn á Malaga á Spáni, fyrir alvar­lega lík­ams­árás og þurfti hann að dvelja í hér­aðs­fang­els­inu í Malaga í átta mán­uði. Mannlíf flutti fjöldi frétta af mál­inu á sínum tíma, sem og aðrir miðlar. Kleini lýsti því sem svo að hann hefði lent í „smá fyll­er­ísslags­mál” eftir að hafa drukkið „einn eða tvo bjóra”. Þannig hafi hann ekki gert neitt.

Raun­veru­leik­inn var hins vegar allt annar. Heim­ildin afhjúpaði að hann hefði í reynd verið hand­tek­inn fyrir ofbeld­is­fullt rán og verið undir áhrifum fíkni­efna. Í félagi við annan mann rændi hann 40 evrum af einum vega­far­anda og hót­aði svo öðrum með egg­vopni. Í lýs­ingum dóms­ins kemur fram að þeir hafi kýlt mann við ránið og ráð­ist á fólk sem reyndi að bjarga honum frá þeim, þar á meðal vin­konu hans. Í dómnum kemur fram að Kleini og félagi hans hafi geng­ist við þess­ari atvika­lýs­ingu.

Þetta var ekki það eina sem reynd­ist ótrú­verð­ugt við frá­sagnir Kleina af ævin­týrum hans í sól­ar­löndum.

Ótrúlegar frásagnir Malaga-fanga

Sölvi Tryggva­son tók við­tal við Kleina þegar hann var laus. Frá­sagnir Kleina af fang­els­is­vist­inni voru lyg­inni lík­astar. Sagðist hann meðal ann­ars hafa verið stung­inn í kvið­inn í fang­els­inu, neyðst til að stinga mann, hafa lent í fanga­upp­reisn og hafa orðið vitni að morði.

Kleini sagði frá hinni meintu hnífs­s­tungu í við­tal­inu við Sölva:

„Ég var stung­inn í einu „rioti“. Það voru reyndar tvö „riot“ sem áttu sér stað en í því „rioti“ sem ég var stung­inn þá var ég kom­inn í klík­una með Pól­verj­unum. Þeir laum­uðu síma yfir til Spán­verj­anna og þeir voru með hann í einn eða tvo daga. Þegar þeir skil­uðu honum var kom­inn raki inn í skjá­inn og þá byrj­aði ein­hver tæt­ingur þar á milli. Svo voru þetta orðin hópslags­mál. Ef ég hefði ekki staðið með Pól­verj­unum þá hefðu þeir hent mér úr klíkunni. Ég þurfti að taka þátt og svo allt í einu fann ég tvö högg og átt­aði mig ekki alveg á því hvað þetta var. Svo sá ég blóð byrja að leka og þá átt­aði ég mig á að ég hafði verið stung­inn.“

Myndir af stungusár­unumKleini sagð­ist hafa verið stung­inn og birti myndir því til stuðn­ings af rispaðri húð.

Kleini sagð­ist ekki hafa fengið neina lækn­is­að­stoð eftir stungu­árás­ina, hann hafi bara þurft að fela sárin og harka af sér. Hinu meinta morði sem hann sagð­ist hafa orðið vitni að, lýsti hann á eft­ir­far­andi máta:

„Svo var það morðið sem ég varð vitni að. Menn voru að ríf­ast á kló­setti þar sem engar mynda­vélar voru og tók einn upp heima­til­bú­inn hníf og stakk hinn rétt fyrir neðan nafl­ann og risti hann allan upp.“ Sagði Kleini í við­tal­inu að fang­arnir hefðu allir hlaupið út af kló­sett­inu en verið síðan yfir­heyrðir.

„Enginn sagði orð af því að ef ein­hver hefði sagt frá þá hefði það sama verið gert við við­kom­andi eins og gert var við þennan 19 ára strák. Maðurinn var drep­inn þarna og það létu allir eins og ekk­ert hefði gerst.“

Mannlíf kann­aði sann­leiks­gildi Kleina varð­andi hið meinta morð í hér­aðs­fang­els­inu á Malaga en fann engar fréttir af því í spænskum fjöl­miðlum. Síðasta and­látið með sak­næmum hætti sem spænskir miðlar fjöll­uðu um, á þeim tíma sem Kleini sat inni, var skömmu fyrir jólin 2021, nánar til­tekið að morgni dags 22. des­em­ber er 51 árs gam­all fangi fannst lát­inn í klefa sínum.

Í kjöl­far hand­töku og fang­els­is­vist­unar Kleina, sleit Svala trú­lofun þeirra en þegar fylgj­andi hans á Instagram spurði hann út í það í nóv­em­ber 2022, hvort hann hyggð­ist ætla sér að „vinna Svölu aftur“, svar­aði hann í Story, að hann vildi ekki svara neinum spurn­ingum um Svölu. Um full­yrð­ingar margar um að hann hefði logið til um reynslu sína úr hér­aðs­fang­els­inu á Malaga, svar­aði Kleini: „Mér er skít­sama hvort fólk trúi þessu eða ekki. Ég veit hvað ég gekk í gegnum, ég veit hvað gerð­ist svo þið sem trúið þessu ekki – I don’t give a fuck.“

Um miðjan jan­úar 2023 hóf Kleini með­ferð við áfeng­is­fíkn í Krísuvík. Af því tæki­færi skrif­aði hann á Instagram: „Lífið hefur verið upp og niður eftir að ég kom út úr carsel [fang­elsi] og í sann­leika var það orðið of mikið fyrir mig og ég hef tekið þá ákvörðun að fara í lang­tíma með­ferð á Krýsuvík í eins marga mán­uði og mér finnst ég þurfa til þess að rétta úr kútnum, þetta er stórt skref fyrir mig og ég vona að Jesú sé að fylgja mér í rétta átt.“

Ný ást opinberuð

Stuttu eftir með­ferð­ina, 23. apríl 2023, opin­ber­uðu þau Kleini og fit­ness-drottn­ingin Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir sam­band sitt á Facebook, en fyrr í mán­uð­inum sagði Mannlíf frá því að þau væru að hitt­ast.

„Við erum að taka eitt skref í einu og sjá hvert það leiðir okkur, við erum mjög ánægð með hlut­ina eins og þeir eru dag­inn í dag þó fjöl­miðlar hafi farið aðeins á undan okkur með hvað opin­berun varðar, en staðan er þannig að við erum ánægð með hvar við stöndum og stefnum,“ sagði Kleini í sam­tali við Mannlíf á þeim tíma.

Samband þeirra var ekki minna áber­andi á slúð­ur­síðum frétta­miðl­anna en sam­band hans við Svölu áður. Athygli vakti aftur hversu mik­ill ald­urs­munur var á þeim, en ell­efu ár skildu á milli þeirra. Þá átti hún fimm börn fyrir en Kleini, eins og áður kemur fram, eina dóttur. Meðal frétta sem bár­ust af sam­bandi þeirra var að þau hefðu fengið sér húð­flúr af nöfnum hvors ann­ars.

Síðar sama ár, 11. sept­em­ber, til­kynntu þau Kleini og Hafdís á Facebook að þau hefðu trú­lofast. Á sama tíma til­kynnti Kleini að hann hyggð­ist taka sér pásu frá sam­fé­lags­miðl­unum, þar sem hann hefði svo margt á sinni könnu.

Tveimur mán­uðum seinna, í des­em­ber 2023, snéri Kleini aftur á sam­fé­lags­miðla og það með miklum látum. Þá birti hann mynd­skeið þar sem hann sést koma Hafdísi á óvart með jóla­gjöf af dýr­ari gerð­inni, nefni­lega for­láta Porsche-bif­reið.

„Ertu að gefa mér Porsche?“ spurði Hafdís for­viða áður en hún hoppar í fang Kleina. „Ég er að gefa þér fokk­ing Porsche!“ svar­aði Kleini. Stuttu síðar var jóla­gjöfin komin á sölu. Í skrif­legu svari til Vísis sagði hann um söl­una: „Ég spurði Hafdísi hvað hún vildi í jóla­gjöf og sendi hún mér mynd af þessum bíl svo ég keypti hann og kom henni á óvart. Hún var í miklu sjokki og þorði ekki að segja mér að þetta væri ekk­ert bíll­inn sem hana lang­aði í enda sendi hún þetta í ein­hverju djóki.“

Í maí 2024 fann Hafdís sig knúna til þess að svara fyrir orðróm sem var í dreif­ingu um að þau Kleini væru hætt saman. Mannlíf sagði frá því hún hefði sagt í Story á Instagram að þau væru alls ekki hætt saman, heldur þvert á móti. „Við erum ekki hætt saman enda stytt­ist í brúð­kaup hjá þessum lúðum,“ skrif­aði hún og birti mynd af þeim saman.

Rétt fyrir jólin 2024 birti Smartland hins vegar frétt um sam­bands­slit þeirra en Kleini sagði þá í sam­tali við mið­il­inn að ekk­ert sér­stakt hefði komið upp á. „Staðan er að við erum mjög góðir vinir, enda deildum við ein­stak­lega fal­legum tímum saman. En núna er komið að nýjum kafla í lífi okkar beggja.“

Þá höfðu óstað­festar sögur gengið um að ekki væri allt sem sýnd­ist.

Handtakan og opinberun Hafdísar

Um síð­ustu helgi hand­tók lög­reglan á Akureyri þrjá karl­menn, grun­aða um hrotta­lega hópnauðgun á ungri konu, en í gær full­yrti Morg­un­blaðið það sem áður hafði verið slúðrað um, að einn þeirra væri Kleini.

Í kjöl­farið birti Hafdís Björg texta á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún seg­ist vera með sam­visku­bit yfir að hafa ekki sagt frá því ofbeldi sem hún varð fyrir í sam­bandi sínu með Kleina. „Mér þykir ótrú­lega erfitt að fylgj­ast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeld­inu sem fylgir þessum manni,“ skrif­aði hún og bætti við „Sam­visku­bitið er að drepa mig.“

Sagðist hún enn vera í áfalla­vinnu eftir sam­bandið og að hún hafi ekki tölu á því hversu oft Kleini hafi verið hand­tek­inn og hótað henni líf­láti.

„Ég leit­aði oft eftir aðstoð. Ég hringdi margoft í lög­regl­una, en alltaf var honum sleppt dag­inn eftir og ég sat eftir með enn meiri ótta og afleið­ingar.“

Svala Karítas birti einnig stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu í Story á Instagram. Þær höfðu orðið miklar vin­konur eftir að Hafdís og Kleini slitu sam­bandi sínu. „Stend með þér elsku gull og öllum þolendum ofbeldis,“ skrif­aði Svala og bætti við: „Ég er sjálf þol­andi ofbeldis af sama manni! Saman erum við sur­vi­vors og hetjur og sterkar.“ Neðar á mynd­ina skrifar Svala: „Líflínan mín í gegnum þennan við­bjóð. Sjúklega þakk­lát fyrir þig elsku gull“.

Rannsókn lög­regl­unnar á hópnauðg­un­inni á Akureyri er lokið og var tekin ákvörðun að ákæra menn­ina ekki fyrir nauðgun. Hins vegar hefur brot gegn kyn­ferð­is­legri frið­helgi verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara.

Uppfært 21. apríl 2026

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi