Kristján Einar Sigurbjörnsson eða Kleini eins og hann er oftast kallaður er að hitta fitnesdrottninguna Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en taka bara eitt skref í einu að sögn Kleina.
Hafdís Björg á fimm börn úr fyrra sambandi en hún er ellefu árum eldri en Kleini, sem sjálfur á eina dóttur. Hefur hún verið afar áberandi í fitnesheiminum en hún er margfaldur Íslandsmeistari í faginu. Þá er hún eigandi líkamsmeðferðarstofunnar Virago. Í samtali við Mannlíf sagði Kleini að fjölmiðlar hafi farið svolítið á undan þeim hvað opinberun varðar en að þau séu að taka eitt skref í einu.
„Við erum að taka eitt skref í einu og sjá hvert það leiðir okkur, við erum mjög ánægð með hlutina einsog þeir eru daginn í dag þó fjölmiðlar hafi farið aðeins á undan okkur með hvað opinberun varðar, en staðan er þannig að við erum ánægð með hvar við stöndum og stefnum.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir