Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leikskólastarfsmaður dæmdur í fangelsi fyrir að misnota börn

Börnin voru tveggja til þriggja ára gömul

Leikskólastarfsmaður dæmdur í fangelsi fyrir að misnota börn
Nathan Bennett Var dæmdur í Bristol Mynd: Breska lögreglan

Leik­skóla­starfs­maður í Bret­landi hefur verið dæmdur í að minnsta kosti 24 ára fang­elsi eftir að hafa verið fund­inn sekur um alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn mjög ungum börnum í leik­skóla þar sem hann starf­aði.

Nathan Bennett, þrí­tugur karl­maður, var dæmdur við dóm­stól í Bristol á suð­vest­ur­hluta Englands fyrir að hafa ítrekað mis­notað fimm drengi sem voru tveggja til þriggja ára gamlir. Dómarinn William Hart lýsti Bennett sem „hættu­legum barn­a­níð­ingi“ þegar dóm­ur­inn var kveð­inn upp.

Í rök­stuðn­ingi dóms­ins sagði Hart að Bennett hefði sett eigin kyn­ferð­is­lega ánægju ofar vel­ferð barn­anna. „Þetta staf­aði af alvar­lega brenglaðri hugsun og, svo notað sé gam­al­dags orð, ákveð­inni illsku,“ sagði dóm­ar­inn.

Bennett var í síð­asta mán­uði sak­felldur fyrir átta ákæru­liði sem tengj­ast nauðgun, kyn­ferð­is­of­beldi og öðrum alvar­legum brotum gegn fimm börnum. Hann hafði áður játað 13 aðra ákæru­liði sem vörð­uðu fjögur sömu börnin, sem þá voru aðeins tveggja ára gömul.

Sak­sókn­ari máls­ins, Gemma Kneebone, sagði Bennett hafa „mis­notað stöðu sína“ sem starfs­maður leik­skól­ans til að fremja ítrekuð brot gegn ungum börnum í hans umsjá.

Málið kemur upp skömmu eftir að annar leik­skóla­starfs­maður í Bret­landi var dæmdur í 18 ára fang­elsi fyrir sam­bæri­leg kyn­ferð­is­brot gegn börnum á leik­skóla í London. Í kjöl­far þess máls hefur breska rík­is­stjórnin, undir for­ystu for­sæt­is­ráð­herr­ans Keir Starmer, íhugað að skylda leik­skóla lands­ins til að setja upp örygg­is­mynda­vélar. Nú stendur yfir sam­ráð um slíkar örygg­is­ráð­staf­anir.

Bennett hóf störf við Partou King Street leik­skól­ann í Bristol árið 2024. Áhyggjur af hegðun hans komu fyrst fram í febr­úar 2025 þegar eft­ir­lits­mynda­vélar sýndu hann beita barn kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Fjöl­skyldur barn­anna sem urðu fyrir brot­unum segja að mis­notk­unin hafi haldið áfram þrátt fyrir að áhyggjur hefðu verið til­kynntar starfs­fólki leik­skól­ans. Í yfir­lýs­ingu frá lög­manns­stof­unni Leigh Day segja fjöl­skyld­urnar að við­var­anir og kvart­anir hafi ekki verið nægi­lega rann­sak­aðar eða komið áfram til við­eig­andi aðila.

Lögmaður fjöl­skyldn­anna, Andrew Lord, segir þær nú krefj­ast skýr­inga, ábyrgðar og trygg­inga um að öryggi barna í slíkum stofn­unum hafi verið bætt veru­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco