Karlmaður hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að aka á gangandi vegfaranda í Hafnarfirði.
Maðurinn var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa þriðjudaginn 5. ágúst 2025 ekið bifreið gegn rauðu umferðarljósi vestur um gatnamót Reykjanesbrautar við Hamraberg í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að hann ók á gangandi vegfaranda sem gekk suður yfir gatnamótin á grænu gönguljósi.
Við áreksturinn hlaut vegfarandinn alvarlega og lífshættulega áverka, þar með talið áverkainnanbastsblæðingu, áverkainnanskúmsblæðingu, mar og yfirborðsáverka á höfði, mar á hægra og vinstra lunga, rifna lifur sem blæddi inn í kviðarhol, sár á mjöðm, opið sár á úlnlið og hendi, brot á þverhryggjartindum á fyrsta og öðrum lendarlið, brot á sköflungsbol og sár á hné.
Ökumaðurinn játaði brot sitt skýlaust. „Á hinn bóginn verður ekki horft framhjá því að með akstri bifreiðarinnar […] greint sinn sýndi ákærði af sér stórfellt gáleysi og olli brotaþola stórfelldu líkamstjóni. Sér enn ekki fyrir endann á hverjar afleiðingar verða fyrir heilsu og framtíð brotaþola,“ segir meðal annars í dómnum.
Hann var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða fórnarlambi sínu 2.500.000 krónur með vöxtum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir