Mikil slagsmál brutust út á veitingastaðnum Chipotle Mexican Grill í Washington, D.C. á föstudagskvöld þegar hópur ungra manna lenti í átökum inni á staðnum.
Myndskeið sem gengið hafa á samfélagsmiðlum sýna hvernig menn köstuðu stólum og borðum hver í annan auk þess sem högg voru látin dynja á fólki. Í einu myndbandinu sést maður lyfta tréstól yfir höfuð sér og slá annan þátttakanda með honum áður en átökin stigmagnast enn frekar.
Viðskiptavinir flýðu vettvang skelfingu lostnir á meðan aðrir fylgdust með átökunum úr öruggri fjarlægð fyrir utan veitingastaðinn og tóku upp myndskeið af atvikinu á farsíma sína.
Samkvæmt lögregluskýrslu sem TMZ hefur undir höndum barst lögreglu tilkynning um slagsmál milli grímuklæddra ungmenna á staðnum. Þegar lögregla kom á vettvang hafi hluti hópsins varað hina við nærveru lögreglu og allir flúið í kjölfarið.
Rannsókn lögreglu bendir til þess að átökin hafi hafist eftir harðar deilur milli tveggja hópa, þó ekki liggi fyrir hvað kveikti rifrildið. Lögregla segir myndbandsupptökur sýna þátttakendur nota borð og stóla sem vopn í átökunum.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og samkvæmt lögreglu urðu engin meiðsli á fólki þrátt fyrir ofbeldið sem sjá má á upptökunum.






















Athugasemdir