Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

„Þeir rík­ustu kom­ast upp með allt saman en það er alþýðan sem þarf að borga brús­ann.“

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Jim Ratcliffe Ratcliffe á bæði 1,4% af Íslandi og hlut í Man. Utd. Mynd: VALERY HACHE / VARIOUS SOURCES / AFP

Breski auð­jöf­ur­inn Jim Ratcliffe not­aði einka­þyrlu sína til að kom­ast örstuttan spöl á skot­svæði sitt á Vopna­firði. Þetta kemur fram í útvarps­þætt­inum Þetta helst á RÚV í dag.

Ratcliff hefur sett mark sitt á Vopna­fjörð og sveit­ina í kring frá því að hann hóf að stunda fjár­fest­ingar á svæð­inu en fyr­ir­tæki hans, Six Rivers er meðal ann­ars leigu­taki lax­veiði­ánna Selár og Hofsár í Vopna­firði, auk ann­arra lax­veiðiáa á norð­aust­ur­horn­inu. Þá er hann einnig stór land­eig­andi á svæð­inu en hann á um 1,4 pró­sent af flat­ar­máli Íslands.

Und­an­farin ár hafa staðið yfir miklar fram­kvæmdir við einka­hús Ratcliffs í Ytri-Hlíð í Vest­ur­ár­dal og við nýtt veiði­hús við Hofsá.

Bjartur Aðal­björns­son sveit­ar­stjórn­ar­maður á Vopna­firði sagði frá áhuga­verðu atviki í við­tali í þætt­inum, þar sem hann lýsir því þegar fjöl­skylda hans var í fjall­göngu upp á hina svoköll­uðu Sjón­varps­hæð við kaup­stað­inn í Vopna­firði þegar Ratcliffe flaug nokk­urra kíló­metra leið frá hús­inu sínu og á einka­skot­svæði sitt sem er þar nokkru utar í firð­inum.

„Það lýsir svo vel held ég þess­ari dýnamík á milli Ratcliffs og vopn­firskrar alþýðu, sagan af því þegar einn góður drengur var í sunnu­dags­fjall­göngu með fjöl­skyld­unni og þau stopp­uðu og fengu sér nesti. Dóttir hans var að berj­ast við að troða papp­arör­ina ofan í kókó­mjólk­ur­fern­una á meðan að þau horfðu á Ratcliffe taka af stað á þyrl­unni sinni í Ytri-Hlíð og fljúga nokkra kíló­metra á skot­svæði sitt. Og ég held að þetta segi kannski alla sög­una um það hvernig þetta er í heim­inum, þeir rík­ustu kom­ast upp með allt saman en það er alþýðan sem þarf að borga brús­ann.“

Bjartur útskýrir málið betur:

„Hann flaug frá Ytri-Hlíð og út eftir við Skóg­ar­lón svo­kallað en þar er jörð sem hann á þar sem hann er með skot­svæði. Það er nú eitt, þarna gátu nú Vopn­firð­ingar farið og æft sig að skjóta en eftir að hann keypti jörð­ina breytti hann því einka­svæði fyrir sig,“ segir Bjartur en aðspurður hvað auð­jöf­ur­inn skjóti á svæð­inu svarar Bjartur:

„Hann er bara að æfa sig. Hann fer þangað og æfir sig áður en hann fer á rjúpna­veiðar. Og það er þannig að þegar hann fer á rjúpna­veiðar, þá er passað upp á að aug­lýsa það að fólk sé ekki vel­komið á jarð­irnar hans á rjúpna­veiðar.“ Áður fyrr tíðk­að­ist það að veiði­menn á Vopna­firði fengu leyfi til að veiða rjúpur á því landi sem nú er undir eign Ratcliffs en nú er öldin önnur.

Bjartur heldur áfram með sög­una af þyrlu­flugi Ratcliffs.

„Grena­dier-jepp­inn hans hefur ekki verið nógu góður fyrir þessa nokkra kíló­metra, það er betra að fara á þyrl­unni,“ og á þá við jeppa sem fyr­ir­tæki Ratcliffs, Ineos fram­leiðir. Bætir hann við að lokum að Vopn­firð­ingar taki lítið eftir sjálfur Ratcliffe en heyri oft í þyrlu hans.

„Það er nú þannig, satt best að segja, að við vitum lítið af sjálfum Jim Ratcliffe, hann ein­hvern veg­inn svífur bara skýjum ofar hérna. Það er helst að maður heyri í þyrl­unni þegar hún er að fara yfir þorpið. En fyrir alþýðu Vopna­fjarðar þá hefur hann rosa­lega lítil áhrif á þeirra dag­lega líf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil