Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðleggur Brynjari Níels að skrifa ekki eftir áfengisdrykkju

„Hann horfi á mig eitt augna­blik eins og væri van­gef­inn“

Ráðleggur Brynjari Níels að skrifa ekki eftir áfengisdrykkju
Brynjar Níelsson Mynd: Facebook/Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, birtir á sam­fé­lags­miðlum í gær þar sem hann lýsir ferð sinni til London og beinir spjótum sínum meðal ann­ars að skipu­lags­málum Reykja­vík­ur­borgar og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra.

Í færsl­unni seg­ist Brynjar vera staddur í London til að kynna sér skipu­lags­mál og búsetu­úr­ræði fyrir þá verst settu í sam­fé­lag­inu. Hann skrifar að honum hafi verið afhent þrjú greiðslu­kort frá Reykja­vík­ur­borg vegna ferð­ar­innar; eitt fyrir flug og hótel, annað fyrir mat og drykk og það þriðja fyrir „ófyr­ir­séðan kostnað“, svo sem áfeng­is­neyslu á næt­ur­klúbbum fram undir morgun.

Brynjar seg­ist hafa hitt borg­ar­stjóra Lundúna í ráð­hús­inu þar sem hann hafi meðal ann­ars rætt um þétt­ingu byggðar. Hann kveðst hafa bent á að hægt væri að byggja hús­næði fyrir allt að milljón manns á svæðum á borð við Hyde Park og í nágrenni Buckinghamhallar. Samkvæmt frá­sögn hans hafi borg­ar­stjór­inn brugð­ist furðu lost­inn við og spurt hvort hann væri í sama flokki og borg­ar­full­trú­arnir Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Alex­andra Briem. „Hann horfi á mig eitt augna­blik eins og væri van­gef­inn,“ skrif­aði borg­ar­full­trú­inn.

Þá segir Brynjar að hann hafi einnig spurt um búsetu­úr­ræði fyrir heim­il­is­lausa í London. Í færsl­unni lýsir hann því að borg­ar­yf­ir­völd útvegi svefn­poka og pappa­kassa fyrir þá sem verst eru staddir.

Í lok færsl­unnar beinir Brynjar síðan orðum sínum að Degi B. Egg­erts­syni, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra. Hann segir að borg­ar­stjóri Lundúna hafi spurt frétta af Degi og hvort rétt væri að hann vildi taka upp evru og ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Brynjar svarar því til að Dagur hafi náð að „sér­hæfa sig í upp­lýs­inga­óreiðu“, en bætir við í gam­an­sömum tón að hann sé „ekki nógu vel gef­inn til að skrifa í Moggann“.

Drekktu tvo og skrifaðu svo

Misvel er tekið í færslu Brynjars en í athuga­semda­kerf­inu ráð­leggur Helga Vala Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Brynjari að hætta skrifa pistla eftir að hann hafi fengið sér áfengi.

„Ég hef til­einkað mér þann sið “drekktu tvo og skrif­aðu svo” sem hefur verið þekktur hjá frægum sam­fylk­ing­ar­mönnum,“ svarar Brynjar henni.

„Ég hélt að þú vildir helst minnst af þeim læra, en margur er krat­inn inni við beinið...“ svarar hún til baka.

„Margt hægt að læra af krötum og almenn óregla er eitt af því,“ skrifar hann svo að lokum til Helgu.

Allt í plati

Brynjar sá sig hins vegar knú­inn til að birta að færslu í dag þar sem hann segir að um skáld­skap hafi verið að ræða og að ekki sé öllum gefið að greina á milli skáld­skapar og sann­leik­ans.

„Ég sendi frá mér hér á fés­bók­inni í gær smá­sögu sem Hall­grímar Helga­synir þessa lands brugð­ust hinir verstu við,“ skrifar hann og bætir við að hann hafi skiln­ing á því að fólki finn­ist sagan hvorki fyndin né skemmti­leg, en að hún hafi engu að síður verið skáld­verk en ekki frá­sögn af raun­veru­legum atburðum.

Brynjar segir sér­stak­lega mik­il­vægt að leið­rétta mis­skiln­ing sem skap­ast hafi í kjöl­far skrif­anna. Hann kveðst hvorki vera í ferð á vegum borg­ar­innar né hafa fengið greiðslu­kort frá Reykja­vík­ur­borg til afnota.

„Ég er ekki í ferð á vegum borg­ar­innar og hef engin greiðslu­kort til að sukka með nema mín eigin,“ skrifar hann.

Hann seg­ist heldur ekki hafa hitt borg­ar­stjóra London, þrátt fyrir að það hafi komið fram í fyrri pistl­inum. Hann hafi þó heim­sótt Downingstræti 10 í þeirri von að rekast á Keir Starmer, en þar hafi eng­inn verið heima nema kött­ur­inn.

Að sögn Brynjars er það eina sem sé satt í upp­haf­legu smá­sög­unni að hann sé staddur í London. Þar sé hann í ferða­lagi með hópi kvenna sem hann lýsir með sínum hætti í færsl­unni og segir þær meðal ann­ars sækja í versl­un­ar­ferðir í hinar þekktu stór­versl­anir borg­ar­innar, þar á meðal Harrods.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum