Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Óð kona olnbogaði flugstjóra í andlitið í miðju flugi

Lögregla beið vél­ar­innar við lend­ingu

Óð kona olnbogaði flugstjóra í andlitið í miðju flugi
United Airlines-flug Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: N509FZ/Wikipedia

Flugvél á vegum United Airlines á leið frá Shanghai í Kína til San Francisco í Banda­ríkj­unum neydd­ist til að lenda í Tókýó í Japan á mið­viku­dag eftir að far­þegi olli alvar­legum ólátum um borð.

Samkvæmt frá­sögn sjón­ar­votts, sem birti lýs­ingu á atvik­inu á sam­fé­lags­miðl­inum Reddit, hóf far­þeg­inn að valda usla skömmu eftir flug­tak. Konan á að hafa átt í deilum við áhöfn vél­ar­innar og sakað starfs­fólkið um að reyna að kúga sig.

Þegar flug­stjóri kom úr stjórn­klef­anum til að reyna að róa aðstæður er konan sögð hafa veitt honum oln­boga­skot. Í kjöl­farið var tekin ákvörðun um að beina vél­inni til Narita-alþjóða­flug­vallar af örygg­is­á­stæðum.

Lögregla beið vél­ar­innar við lend­ingu og fór um borð þar sem konan var hand­tekin. Áður en hún var leidd frá borði mun hún hafa gripið skjöl úr sæt­is­vasa fyrir framan sig og kastað þeim upp í loftið á meðan hún hróp­aði ókvæð­is­orð. Mynd­skeið sem birt hefur verið á sam­fé­lags­miðlum sýnir lög­reglu­menn glíma við kon­una áður en hún er leidd úr flug­vél­inni.

Í yfir­lýs­ingu frá United Airlines kemur fram að flugi númer 858 frá Shanghai til San Francisco hafi verið beint til Narita-flug­vallar vegna óláta far­þega.

Þar segir jafn­framt að lög­regla hafi fjar­lægt far­þeg­ann við kom­una, að við­haldsteymi hafi yfir­farið flug­vél­ina og að flugið hafi í kjöl­farið haldið áfram ferð sinni til San Francisco.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco