Lögreglan í Del Rio í Texas hefur handtekið þrjár ungar konur sem grunaðar eru um að hafa orðið 32 ára fimm barna móður að bana með hnífstunguárás um hábjartan dag á fjölfarinni götu í borginni.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru systurnar Kitty Mia Diaz, 21 árs, og Amaya Cookie, 19 ára, ásamt 21 árs Kyandru Renee Faz, grunaðar um að hafa ráðist á Caroline „Caro“ Peña. Peña var flutt á sjúkrahús í Del Rio með alvarlega stungusára áður en hún var síðar flutt á sérhæft áfallasjúkrahús í San Antonio. Þar lést hún af sárum sínum.
Lögregla var fyrst kölluð á sjúkrahúsið eftir að tilkynning barst um konu sem hafði hlotið hnífstungusár. Við nánari rannsókn var lögreglu vísað á vettvang árásarinnar þar sem öryggismyndavélar voru skoðaðar og vitni yfirheyrð. Í kjölfarið voru konurnar þrjár nafngreindar sem grunaðir gerendur.
Þær voru handteknar á fimmtudag og færðar í varðhald þar sem þær hafa verið ákærðar fyrir morð samkvæmt bandarískum fjölmiðlum.
Myndskeið sem birt hefur verið af handtökunum sýnir systurnar tvær brosa þegar þær eru leiddar í handjárnum af lögreglu. Einnig sjást þær brosa á fangamyndum sem teknar voru eftir handtökuna.
Lögreglan hefur ekki greint frá því hvað hafi legið að baki árásinni og rannsókn málsins stendur enn yfir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir