Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ólöglegir landnemar sakaðir um íkveikju í mosku

Mótmæli gegn ofbeldi ólög­legra land­nema á götum Tel Aviv

Ólöglegir landnemar sakaðir um íkveikju í mosku
Frá brun­anum Ísra­elskir land­ræn­ingjar eru grun­aðir um verkn­að­inn Mynd: Skjáskot

Ísra­elskir land­nemar eru sak­aðir um að hafa kveikt í al-Rahma-mosk­unni í bænum Qusra á hernumda Vest­ur­bakk­anum, á sama tíma og hund­ruð Ísraela söfn­uð­ust saman í Tel Aviv til að mót­mæla vax­andi ofbeldi land­nema og her­námi Ísraels á palest­ínsku land­svæði.

Mynd­skeið sem Al Jazeera hefur stað­fest sýna mosk­una loga en palest­ínskar heim­ildir segja land­nema bera ábyrgð á íkveikj­unni. Atvikið átti sér stað skömmu eftir að ísra­elskar örygg­is­sveitir hófu umfangs­miklar aðgerðir á Vest­ur­bakk­anum í kjöl­far nýlegra árása þar sem fjórir Palest­ínu­menn og tveir ísra­elskir her­menn lét­ust.

Samkvæmt palest­ínsku frétta­stof­unni Wafa voru um 80 Palest­ínu­menn hand­teknir í hús­leitum og aðgerðum víða um Vest­ur­bakk­ann, meðal ann­ars í Ramallah, Jenin, Hebron, Betlehem og Tulkarem. Þá var gerð umfangs­mikil inn­rás í Jenin og fjölda bæja og þorpa í nágrenn­inu.

Ísra­elski rík­is­fjöl­mið­ill­inn Kan greindi jafn­framt frá því að hertar umferð­ar­tak­mark­anir og fjöl­margir örygg­is­eft­ir­lits­staðir hefðu verið settir upp á helstu vegum og við inn­ganga þorpa á Vest­ur­bakk­anum.

Samkvæmt palest­ínskum upp­lýs­ingum hafa ísra­elskir her­menn og land­nemar frá 7. októ­ber 2023 banað að minnsta kosti 1.185 Palest­ínu­mönnum á Vest­ur­bakk­anum, þar af um 250 börnum. Yfir 12.600 hafa særst og meira en 24.000 verið hand­teknir. Talið er að rúm­lega 9.200 Palest­ínu­menn séu nú í ísra­elskum fang­elsum, þar af um 3.200 án þess að hafa verið ákærðir.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar og mann­rétt­inda­sam­tök hafa ítrekað gagn­rýnt Ísrael fyrir að bregð­ast ekki við ofbeldi land­nema með full­nægj­andi hætti og segja að sjaldan sé ákært í slíkum málum.

Á sama tíma mót­mæltu hund­ruðir Ísraela á Kaplan-götu í Tel Aviv vax­andi ofbeldi land­nema og her­stjórn Ísraels á Vest­ur­bakk­anum. Lög­reglan hand­tók níu mót­mæl­endur og sagði sam­kom­una hafa farið fram án leyfis og raskað umferð og alls­herj­ar­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco