Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag“

Skák­stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar Stef­áns­son seg­ist gríð­ar­lega þakk­látur fyrir lífið

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag“
Vignir Vatnar Stef­áns­son Mynd: Skák.is

Skák­stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar Stef­áns­son seg­ist gríð­ar­lega þakk­látur fyrir lífið eftir að hafa glímt við alvar­lega van­líðan og farið svo djúpt að hann hug­leiddi að taka eigið líf. Hann vill nú nýta reynslu sína til að opna umræð­una um and­lega líðan ungra karl­manna og veita öðrum í sam­bæri­legri stöðu von.

Vignir er nýjasti gestur Sölva Tryggva­sonar í hlað­varpi hans. Hann hefur á und­an­förnum árum skipað sér í hóp öfl­ug­ustu ungu skák­manna Íslands og vakið athygli fyrir árangur sinn við skák­borðið.

Í við­tal­inu ræðir Vignir meðal ann­ars opin­skátt um erfið tíma­bil í lífi sínu. Hann telur mik­il­vægt að sam­fé­lagið taki stöðu ungra karl­manna alvar­lega og segir marga þeirra glíma við ein­angrun, fíkn og slæma and­lega líðan.

„Það er erfitt að vera ungur karl­maður í vest­rænum heimi í dag og þess vegna finnst mér að mér beri ákveðin skylda til þess að tala um þetta og gefa ungum karl­mönnum sem eru að glíma við erf­ið­leika von og sýna að það sé hægt að kom­ast út úr þessu,“ segir Vignir.

Hann nefnir meðal ann­ars tölvu­leikjafíkn og klám sem dæmi um þætti sem geti ýtt undir fíkn og ein­angr­un­ar­hegðun. Sjálfur vilji hann sýna með sögu sinni að hægt sé að snúa við blað­inu.

„En það er alltaf leið út og ég er besta dæmið um það. Ég held að mér beri skylda að hjálpa með því að segja mína sögu og vera alveg opin­skár.“

Mikið hark að lifa á skákinni

Vignir ræðir einnig atvinnu­mennsk­una í skák og segir það hafa verið mikið hark að reyna að fram­fleyta sér ein­göngu með keppni. Verð­launafé geti sveifl­ast veru­lega eftir árangri og stundum geti ein skák skipt sköpum fjár­hags­lega.

Hann tekur sem dæmi mót í London þar sem sigur hefði skilað honum um 1,8 millj­ónum króna. Vignir var með væn­lega stöðu gegn spænskum stór­meist­ara í úrslitum en skákin end­aði með jafn­tefli.

„Það þýddi að ég fékk þrjú­hund­ruð þús­und kall í stað­inn. Þannig að það eru ekki alltaf jólin í þessu,“ segir hann.

Að hans sögn er því mik­il­vægt fyrir atvinnu­skák­menn að byggja upp eigin ímynd, nýta sam­fé­lags­miðla og afla sam­starfs­að­ila í stað þess að reiða sig ein­göngu á verð­launafé.

Staða Vignis hefur batnað sam­hliða auknum árangri og athygli. Hann segir fjár­hags­lega óviss­una ekki lengur jafn mikla og áður.

„Ég er ekki lengur í þeirri stöðu að ef ég vinn ekki mót, þá geti ég ekki borgað leig­una mína. Þannig að ég er mjög þakk­látur og ætla að halda áfram að elta draum­inn alla leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur