Matvælastofnun vill vara neytendur sem eru með ofnæmi fyrir möndlum við einni framleiðslulotu af Brikk súkkulaðiköku. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna vegna vanmerkinga á ofnæmis-og óþolsvalda í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF). Villandi merkingu um að varan geti innihaldið snefil af möndlum er hættuleg fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir möndlum.
Neytendur með ofnæmi fyrir möndlum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga eða skila henni til Brikk Eldhús ehf, Dalvegi 32b, 201 Kópavogi.

Mynd: Aðsend































Athugasemdir