Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

„Eigum við að hafna sam­starfi við vini í Evrópu en bukka okkur fyrir vald­inu í Washington?“

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA
Össur Skarp­héð­ins­son Er fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: BHJ

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, líkir and­stæð­ingum áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið við MAGA-hreyf­ingu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Þetta kemur fram í pistli sem Össur birti á Facebook.

Össur segir sam­svörun milli MAGA-hreyf­ing­ar­innar og þess sem hann kallar „NEI-hreyf­ing­una“ á Íslandi verða sífellt meira áber­andi eftir því sem líður á kosn­inga­bar­átt­una.

Hann gagn­rýnir jafn­framt fjár­mögnun bar­átt­unnar gegn áfram­hald­andi við­ræðum og heldur því fram að auð­menn og útgerð­ar­menn leggi henni til veru­lega fjár­muni. Þá beinir hann spjótum sínum að Morg­un­blað­inu og sakar blaðið um að hafa tekið virkan þátt í mál­flutn­ingi gegn Evr­ópu­sam­band­inu.

Össur segir jafn­framt að for­ystu­menn and­stæð­inga við­ræðn­anna reyni að skapa ótta innan emb­ætt­is­kerf­is­ins og draga úr trú­verð­ug­leika sér­fræð­inga, háskóla­sam­fé­lags­ins og ráðu­neyta með ásök­unum um tengsl við erlend öfl.

Sér­stak­lega gagn­rýnir Össur ummæli um að áfram­hald­andi við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið kunni að hafa áhrif á sam­skipti Íslands við Banda­ríkin. Vísar hann þar meðal ann­ars til ummæla Ingi­bjargar Dav­íðs­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, og Ólafs Ragnars Gríms­sonar, fyrr­ver­andi for­seta Íslands.

Össur segir það þver­sagna­kennt að þeir sem seg­ist vilja verja Ísland gegn erlendum áhrifum hafi áhyggjur af við­brögðum stjórn­valda í Washington.

„Eigum við að hafna sam­starfi við vini í Evrópu en bukka okkur fyrir vald­inu í Washington?“ spyr Össur í pistl­inum.

Hann rifjar að lokum upp harðar deilur Íslands og Banda­ríkj­anna á árum áður og segir afstöðu Ólafs Ragnars nú ólíka þeirri sem fyrr­ver­andi for­set­inn hafi sýnt í sam­skiptum ríkj­anna á sínum tíma.

Andstæðingar ósammála utanríkisráðherranum

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus og sjálf­stæð­is­maður, Tómas Þór Þórð­ar­son og Þórir Sæmunds­son, fyrr­ver­andi leik­ari, gagn­rýna harð­lega ummælin Össurar í athuga­semda­kerf­inu.

Hannes Hólm­steinn svar­aði Össuri í athuga­semd við færsl­una og sagði að þegar rætt væri um fjár­magn þyrfti einnig að taka til­lit til þeirra fjár­muna sem RÚV og utan­rík­is­ráðu­neytið verðu til mála­flokks­ins. Hann sak­aði báðar stofn­anir um að reka áróður fyrir já-hlið­ina.

„Og þegar þú talar um millj­óna­mær­inga, gleymdu ekki Jóni Ásgeiri og Helga Magn­ús­syni já-megin,“ skrif­aði Hannes. Hann sagð­ist þó ekki telja tekjur fólks skipta máli heldur þau rök sem það hefði fram að færa.

Tómas Þór Þórð­ar­son, sem einnig er Sjálf­stæð­is­maður, tók í sama streng og benti á fjár­sterka ein­stak­linga sem hann sagði styðja já-hlið­ina.

„Helstu stuðn­ings­menn Sjásjá eru Lárus Welding og Jón Ásgeir. Talandi um auð­menn,“ skrif­aði Tómas.

Þórir Sæmunds­son, fyrr­ver­andi leik­ari, var enn harð­orð­ari í garð Össurar og sagði mál­flutn­ing­inn ein­kenn­ast af „yfir­gengi­legum yfir­lýs­ingum og þvælu“.

Hann gagn­rýndi jafn­framt mál­flutn­ing margra stuðn­ings­manna áfram­hald­andi við­ræðna og sagði að í umræð­unni væri ítrekað farið í mann­inn fremur en mál­efnið. Þá sak­aði hann hluta já-hreyf­ing­ar­innar um yfir­læti og að tala niður til þeirra sem væru ósam­mála.

„Mímímímímímímímí allir eru heimskir og vondir nema ég!“ skrif­aði Þórir í lok athuga­semdar sinnar.

Tómas Þór er vara­þing­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum