Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Þorgerður Katrín fyrir stóru stundina

Landslið sent í við­ræður ef JÁ verður ofan á

Þorgerður Katrín fyrir stóru stundina
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Ganga til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bandið Mynd: Facebook/Þorgerður Katrín

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort Ísland eigi að taka upp þráð­inn og hefja að nýju samn­inga­við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu fer fram um allt land í dag. Um er að ræða ein­hverja mik­il­væg­ustu atkvæða­greiðslu í utan­rík­is­málum þjóð­ar­innar um ára­bil. Aðdrag­andi kosn­ing­anna hefur ein­kennst af harðri en líf­legri umræðu þar sem tek­ist hefur verið á um efna­hags­legt öryggi, full­veldið og stöðu íslensku krón­unnar. Í opin­berri yfir­lýs­ingu sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra birti í til­efni dags­ins, gerir hún upp síð­ustu vikur sem hún segir hafa verið við­burða­ríkar, gef­andi en jafn­framt krefj­andi. Hún lýsir yfir miklu stolti og ánægju með þá víð­tæku sam­fé­lags­legu umræðu sem skap­ast hefur í aðdrag­anda kosn­ing­anna.

„Fólk hefur spurt, hlustað, lesið, rök­rætt og myndað sér skoðun. Alþjóða­mál, staða Íslands í heim­inum, full­veldið okkar og ekki síst efna­hags­legt öryggi hafa sjaldan fengið jafn mikið rými í almennri umræðu,“ skrifar Þor­gerður Katrín og bætir við að þessi umræða sé dýr­mæt, óháð því hver nið­ur­staðan verður.

Loforð ríkisstjórnarinnar haldið

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins og Við­reisnar, undir for­ystu Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, var mynduð í lok síð­asta árs með það skýra mark­mið að leggja ESB-við­ræður í dóm kjós­enda. Utan­rík­is­ráð­herra vísar beint til þess sam­starfs og lof­orðs­ins sem gefið var í upp­hafi veg­ferð­ar­innar.

„Þegar við Inga og Kristrún lögðum af stað í þessa veg­ferð lof­uðum við einu: að þjóðin fengi að ráða. Við sögð­umst treysta fólki til að taka þessa ákvörðun og við höfum staðið við það. Ég er stolt af því.“

Tekist á um vexti, matarverð og krónuna

Í færslu sinni nefnir utan­rík­is­ráð­herra helstu efna­hags­legu rökin sem verið hafa í brennid­epli hjá þeim sem styðja Já-fylk­ing­una. Hún spyr hvort hægt sé að tryggja íslenskum heim­ilum og fyr­ir­tækjum stöðugra umhverfi, lægri vexti og lægri fjár­magns­kostnað og hvort ungt fólk eigi að þurfa að sætta sig við dýr­ustu mat­ar­körf­una ásamt þeim sveiflum sem fylgja litlum gjald­miðli á borð við íslensku krón­una. Þá telur hún mik­il­vægt að Ísland eign­ist loks­ins „sæti við borðið“ þar sem ákvarð­anir sem hafa þegar mikil áhrif á Ísland í gegnum EES-samn­ing­inn eru teknar. Þor­gerður segir að þessum stóru spurn­ingum verði ekki svarað með hræðslu­á­róðri heldur með því að mæta til leiks af sjálfs­trausti.

„Samn­inga­nefndin verður skipuð okkar sterkasta og reynslu­mesta fólki, við sendum lands­lið út sem mun ekki gefa neitt eftir. Þetta er sú póli­tík sem ég trúi á. Ekki að loka dyrum af ótta, heldur opna þær, líta inn og taka síðan upp­lýsta ákvörðun.“

Ekki kosið um endanlega aðild

Ráðherra áréttar og leggur mikla áherslu á að kjós­endur átti sig á því að atkvæði dags­ins í dag sé ekki loka­skrefið heldur aðeins upp­hafið á ferl­inu. Kosn­ingin snú­ist um að kanna grund­völl­inn en ekki að ganga beint í sam­bandið.

„Á morgun [í dag] kjósum við um að fara í samn­inga­við­ræður. Ekki um aðild eða aðlögun. Ef nið­ur­staðan verður já verður önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­samn­ing­inn sjálfan. Punktur.“

Að lokum dregur hún línu á milli flokkspóli­tíkur og hags­muna lands­ins og segir að atkvæða­greiðslan snú­ist hvorki um hana, rík­is­stjórn­ina né fyrri vald­hafa. „Hún snýst um Ísland og hvernig við viljum mæta fram­tíð­inni. Við þrjár stóðum við okkar. Á morgun [í dag] er orðið ykkar.“

Kjör­staðir um allt land opna klukkan 09:00 og lýkur kosn­ingu í kvöld. Fylgst verður grannt með taln­ingu og fyrstu tölum jafn­sk­ótt og þær ber­ast eftir lokun kjör­staða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag