Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nýjar upplýsingar koma fram um dauða mæðgna á hóteli í Las Vegas

Skot­hylki fund­ust á gólf­inu og Ruger-skamm­byssa á vett­vangi

Nýjar upplýsingar koma fram um dauða mæðgna á hóteli í Las Vegas
Tawnia McGeehan Mynd: Tawnia McGeehan/Facebook

Tawnia McGeehan, sem er talin hafa myrt 11 ára dóttur sína, Addi Smith, áður en hún svipti sig lífi í Las Vegas í febr­úar síð­ast­liðnum, var með nokkur lyf í lík­am­anum þegar hún lést. Þetta kemur fram í krufn­ing­ar­skýrslu rétt­ar­meina­fræð­ings í Clark-sýslu sem fjöl­miðar í Banda­ríknum hafa undir höndum.

Mæðgurnar fund­ust látnar á hót­el­her­bergi á Rio-hót­el­inu í Las Vegas, þar sem þær höfðu dvalið vegna klapp­stýru­keppni. Samkvæmt skýrsl­unni lét­ust þær báðar af völdum skotsára á höfði.

Fyrr­ver­andi eig­in­maður McGeehan hafði óskað eftir vel­ferð­ar­eft­ir­liti lög­reglu eftir að honum tókst ekki að ná sam­bandi við mæðgurnar. Starfs­fólk hót­els­ins fór að her­berg­inu og fann þar miða fyrir utan dyrnar þar sem varað var við því að fara inn og beðið um að hringt yrði í neyð­ar­lín­una. Á mið­anum kom jafn­framt fram að tvö lík væru inni í her­berg­inu og að annað þeirra væri 11 ára barn.

Mæðgurnar fund­ust í rúmi inni á her­berg­inu. Lögregla fann þar tvö kveðju­bréf og kom fram í öðru þeirra að Addi hefði verið gefið mikið magn lyfja áður en hún lést.

Við rann­sókn her­berg­is­ins fund­ust fjöl­margar lyfjaflöskur sem til­heyrðu McGeehan, opnar umbúðir með THC-gúmmíi og svefn­lyf sem fást án lyf­seð­ils. Skot­hylki fund­ust á gólf­inu og Ruger-skamm­byssa á vett­vangi.

Eit­ur­efna­mæl­ingar sýndu að McGeehan var með lyf í lík­am­anum sem meðal ann­ars eru notuð við þung­lyndi, svefn­leysi og kvíða.

Í skýrsl­unni kemur fram að McGeehan hafi átt við alvar­legt þung­lyndi að stríða og áður fengið ávísað þung­lynd­is­lyfjum. Aðstand­endur hafi vitað af fyrri sjálfs­vígs­hugs­unum hennar en ekki haft vit­neskju um fyrri sjálfs­vígstil­raunir.

Lög­reglu­maður skráði jafn­framt að McGeehan hefði að sögn glímt við alvar­legt þung­lyndi vegna sam­bands­slita og yfir­stand­andi for­ræð­is­deilu við fyrr­ver­andi eig­in­mann sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco