Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

„Kynlíf með sjálfum sér og kyn­líf með maka upp­fylla heldur ekki alltaf sömu þarfir.“

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum
Alþingi Íslend­inga Mynd: Víkingur

Umræða um sjálfs­fróun og notkun kyn­lífstækja innan sam­banda hefur verið nokkur að und­an­förnu og meðal ann­ars hefur þeirri spurn­ingu verið velt upp hvort slík iðkun geti talist fram­hjá­hald. Eva Pandora Bald­urs­dóttir, sam­bands- og kyn­lífs­ráð­gjafi og fyrrum þing­maður Pírata, fjallar um málið í aðsendri grein á Vísi.

Eva segir ekki óeðli­legt að notkun maka á kyn­lífstækjum geti vakið upp ýmsar til­finn­ingar. Fólk geti fundið fyrir óör­yggi, höfnun eða áhyggjum af því að vera ekki nóg fyrir maka sinn.

„Ef annar aðil­inn notar kyn­lífstæki getur hinn upp­lifað það sem vís­bend­ingu um að eitt­hvað vanti í kyn­lífið þeirra, að mak­inn sé ekki full­nægður eða jafn­vel að tækið sé á ein­hvern hátt að taka yfir hlut­verk sem honum finnst að hann eigi sjálfur að gegna,“ skrifar Eva.

Hún segir mik­il­vægt að greina á milli þess að finna fyrir óör­yggi og þess að hegðun maka feli raun­veru­lega í sér ógn við sam­bandið. Til­finn­ing­arnar geti verið raun­veru­legar þótt túlk­unin sem fylgi þeim sé ekki endi­lega rétt.

Eva segir sjálfs­fróun fyrir marga vera eðli­legan hluta eigin kyn­ver­undar. Hún geti verið leið til að slaka á, kynn­ast eigin lík­ama betur, fá útrás eða ein­fald­lega njóta kyn­ferð­is­legrar vellíð­unar. Það þurfi ekki að segja neitt nei­kvætt um kyn­ferð­is­lega löngun til maka.

„Kynlíf með sjálfum sér og kyn­líf með maka upp­fylla heldur ekki alltaf sömu þarfir. Annað þarf ekki að koma í stað hins,“ skrifar hún.

Þá hafnar Eva þeirri hug­mynd að sjálfs­fróun þurfi að draga úr kyn­ferð­is­legum áhuga á maka. Hún segir kyn­ferð­is­lega virkni þvert á móti geta ýtt undir kyn­ferð­is­legar hugs­anir, löngun og áhuga á kyn­lífi almennt.

„Löngun er ekki eins og bens­íntankur sem tæm­ist við notkun,“ skrifar Eva og líkir kyn­löngun frekar við vöðva sem hitni og þjálf­ist við hreyf­ingu.

Hún hvetur fólk að lokum til þess að líta ekki á sjálf­stæða kyn­ver­und maka síns sem sam­keppni. Að vera í sam­bandi þýði ekki að fólk öðlist einka­rétt á kyn­ferð­is­legri ánægju hins aðil­ans.

„Kyn­ver­und maka okkar er ekki ógn sem þarf að halda í skefjum heldur heill heimur sem við getum fengið að kynn­ast,“ skrifar Eva og segir mögu­lega mun meira spenn­andi að fá boð inn í þann heim en að reyna að loka honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur