Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Tucker Carlson seg­ist hafa verið sleg­inn eftir fund sinn með Banda­ríkja­for­seta.

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Donald Trump og Tucker Carlson Myndin er ekki frá einka­fundi þeirra fyrr­ver­andi félaga Mynd: CHIP SOMODEVILLA / GETTY IMAGES VIA AFP

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Tucker Carlson segir Donald Trump Banda­ríkja­for­seta hafa gert lítið úr afleið­ingum stríðs við Íran á einka­fundi þeirra í Hvíta hús­inu, aðeins nokkrum dögum áður en Banda­ríkin og Ísrael hófu árásir á Íran. Að sögn Carlsons á Trump að hafa sagt: „Við deyjum öll hvort sem er, þannig að það skiptir engu máli.“

Carlson greindi frá sam­tal­inu í við­tali í Newsmakers-hlað­varp­inu NPR sem birt var í gær. Hann seg­ist hafa rætt við Trump að minnsta kosti tíu sinnum í febr­úar, þar á meðal ítar­lega um hætt­una á því að stríð við Íran gæti raskað olíu- og gas­flæði í Mið-Aust­ur­löndum.

Á fund­inum, sem fór fram á skrif­stofu for­set­ans, seg­ist Carlson hafa sagt Trump að stríðið sner­ist ekki fyrst og fremst um kjarn­orku­á­ætlun Írans. Trump hefði sjálfur sagt í júní árið áður að kjarn­orku­geta Írans hefði verið eyðilögð, að sögn Carlsons.

Carlson sagði Trump að Ísrael væri að þrýsta á um stríð með það að mark­miði að ná yfir­ráðum á svæð­inu, veikja sex ríki við Persaflóa og ýta banda­rískum her­stöðvum út úr Mið-Aust­ur­löndum.

„Ég sagði þetta við Trump, beint framan í hann, á for­seta­skrif­stof­unni nokkrum dögum áður en stríðið hófst. Og hann horfði á mig og sagði: „Já, þú hefur rétt fyrir þér. En þegar öllu er á botn­inn hvolft deyjum við öll hvort sem er, þannig að það skiptir engu máli,““ sagði Carlson.

Carlson sagð­ist hafa orðið sleg­inn yfir svari for­set­ans.

„Ég sagði við hann: En hvað með börnin okkar og barna­börnin okkar og landið okkar? Og hann sagði: „Ugh“,“ sagði Carlson og bað­aði frá sér hönd­unum.

„Ég var sleg­inn yfir þessu vegna þess að þetta er níhil­ismi og það er það síð­asta sem nokkur leið­togi ætti að sýna. Það skiptir máli. Það skiptir máli hver lifir eða deyr,“ bætti hann við.

Carlson gagnrýnir Trump harðlega

Carlson var áður einn af áber­andi stuðn­ings­mönnum Trumps og tal­aði fyrir hans hönd á lands­fundi Repúblikana­flokks­ins árið 2024. Hann hefur hins vegar snú­ist gegn for­set­anum, meðal ann­ars vegna stríðs­ins og seg­ist nú telja að Trump eigi að víkja úr emb­ætti.

Carlson hefur gagn­rýnt stríðið allt frá upp­hafi og í apríl virt­ist hann jafn­vel gefa í skyn í eigin þætti að Trump gæti verið and­kristur, sam­kvæmt CNN.

Trump brást síðar við gagn­rýni Carlsons á Truth Social og kall­aði hann og aðra gagn­rýnendur „heimsk­ingja“ sem vildu að Íran yrði með kjarn­orku­vopn.

Þegar NPR leit­aði við­bragða Hvíta húss­ins við frá­sögn Carlsons um einka­fund­inn var ekki brugð­ist sér­stak­lega við ummæl­unum „við deyjum öll hvort sem er“. Þess í stað sendi Hvíta húsið NPR fyrri færslu Trumps um Carlson.

„Kannski ætti hann að leita sér að góðum geð­lækni!“ skrif­aði Trump þar um fyrr­ver­andi stuðn­ings­mann sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco