Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna

Funduðu með Selenskí og banda­rískum ráða­mönnum í New York

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar og Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ingar Myndin er frá fundi SÞ á síð­asta ári Mynd: Stjórnarráðið

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra flytur ávarp Íslands í leið­togaum­ræðu átt­ug­asta og fyrsta alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York síð­degis í dag, laug­ar­dag. Hægt verður að fylgj­ast með flutn­ingnum í beinni útsend­ingu á vef­síðu Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Utan­rík­is­ráð­herra hefur tekið þátt í fjöl­mörgum fundum og við­burðum í vik­unni í tengslum við ráð­herra­vik­una en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert.

„Á þeim umróta­tímum sem við nú lifum er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í sam­starfi þjóða og við gætum hags­muna okkar Íslend­inga með þeim hætti,“ segir Þor­gerður Katrín inn á vef utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Hún nefnir að hún hafi átt fjölda­mörg tví­hliða sam­töl í vik­unni, bæði á form­legum fundum og á göngum þings­ins, en leið­toga­vikan bjóði upp á ein­stakt tæki­færi til slíkra skoð­ana­skipta.

Stór mál á dagskrá: Úkraína og Miðausturlönd

Utan­rík­is­ráð­herra og Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra voru við­staddar opnun ráð­herra­vik­unnar á þriðju­dag. For­sæt­is­ráð­herra sat sér­stakan leið­toga­fund um tveggja ríkja lausn­ina milli Ísraels og Palest­ínu, og flutti Þor­gerður Katrín ávarp á fundi ríkja­banda­lags um sömu mál­efni auk þess að sækja ráð­herra­fund stuðn­ings­ríkja Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­ar­innar (UNRWA).

Málefni Úkraínu voru sömu­leiðis áber­andi. Utan­rík­is­ráð­herra sótti sér­stakan við­burð um Krím-skaga þar sem Volodó­mír Selenskí Úkra­ínu­for­seti var aðal­ræðu­maður, fylgd­ist með umræðum í örygg­is­ráð­inu og lýsti yfir stuðn­ingi við Úkraínu á fjöl­miðla­við­burði ásamt utan­rík­is­mála­stjóra ESB, Kaja Kallas, og öðrum evr­ópskum ráð­herrum.

Umhverfismál og mikilvægir fundir við bandaríska ráðamenn

Í vik­unni stýrði Þor­gerður Katrín fundi kven­leið­toga og flutti ávörp um haf­rétt­ar­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og hætt­una sem stafar af hækkun yfir­borðs sjávar. Hún fund­aði einnig með utan­rík­is­ráð­herrum NB8-ríkj­anna og Kanada, auk þess sem hún und­ir­ritar í dag sam­komu­lag um stuðn­ing Íslands við frið­ar­um­leit­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna (DPPA).

Tækifæri til við­ræðna við banda­ríska ráða­menn í New York voru góð og sótti Kristrún Frosta­dóttir mót­töku á vegum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Þá hitti utan­rík­is­ráð­herra Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, á fundi norð­ur­slóða­ríkja, og átti fundi með Christopher Landau varaut­an­rík­is­ráð­herra og Allison M. Hooker aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag