Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Óheimilt er að fara með barn úr landi nema báðir for­sjárað­ilar sam­þykki ferða­lagið

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Börn Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið

Umboðs­maður Alþingis hefur lokið með­ferð kvört­unar manns sem taldi að ýmsar stofn­anir og aðilar hefðu sýnt af sér van­rækslu og aðgerð­ar­leysi þegar barns­móðir hans flutti með börn þeirra frá Íslandi án sam­þykkis hans.

Málið lauk með bréfi umboðs­manns 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og var birt nokkrum dögum síðar á vef­síðu hans.

Kvörtun manns­ins beind­ist meðal ann­ars að grunn­skóla barn­anna, félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lags, lög­reglu og lög­manni sem hafði starfað í umboði hans. Taldi mað­ur­inn að þessir aðilar hefðu vitað af fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi barns­móð­ur­innar en hvorki upp­lýst hann né gripið til ann­arra aðgerða.

Í nið­ur­stöðu umboðs­manns kemur fram að óheim­ilt sé að fara með barn úr landi nema báðir for­sjárað­ilar sam­þykki ferða­lagið. Ef for­eldrar sem fara sam­eig­in­lega með for­sjá barns greinir á um utan­lands­ferð getur sýslu­maður úrskurðað um rétt for­eldris til að fara með barnið úr landi. Slíkan úrskurð er síðan hægt að kæra til dóms­mála­ráð­herra.

Þá gegnir dóms­mála­ráðu­neytið hlut­verki mót­töku­stjórn­valds sam­kvæmt lögum um afhend­ingu brott­num­inna barna. Í því felst meðal ann­ars sam­starf við stjórn­völd ann­arra ríkja þegar barn hefur verið flutt með ólög­mætum hætti milli ríkja.

Umboðs­maður benti á að ekki yrði ráðið af kvörtun manns­ins að fyrir lægi úrskurður sýslu­manns eða dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um heim­ild móð­ur­innar til að fara með börnin úr landi. Þá virt­ist mað­ur­inn ekki hafa leitað til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna brott­flutn­ings barn­anna.

Hvað lög­regl­una varð­aði hafði heldur ekki verið leitað til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu. Umboðs­maður taldi jafn­framt að mað­ur­inn ætti fyrst að beina athuga­semdum sínum vegna grunn­skól­ans og félags­þjón­ust­unnar til yfir­manna við­kom­andi starfs­manna og sveit­ar­fé­lags­ins.

Af þessum sökum taldi umboðs­maður skil­yrði ekki upp­fyllt til að taka kvörtun­ina til frek­ari með­ferðar.

Kvörtunin beind­ist einnig að störfum lög­manns en umboðs­maður tók fram að starfs­svið emb­ætt­is­ins næði ekki til starfa lög­manna. Sá sem telur lög­mann hafa brotið gegn lögum eða siða­reglum getur hins vegar lagt fram kvörtun hjá úrskurð­ar­nefnd lög­manna.

Umboðs­maður benti mann­inum að lokum á að hann gæti leitað til emb­ætt­is­ins á ný eftir að nið­ur­staða við­eig­andi stjórn­valda lægi fyrir, teldi hann þá enn til­efni til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag