Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Pró­fess­or­inn gant­ast með ný götu­heiti í borg­inni.

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Eiríkur Rögn­valds­son Eiríkur er með húmor­inn í lagi Mynd: Árnastofnun

Eiríkur Rögn­valds­son, upp­gjafa­pró­fessor í íslenskri mál­fræði, hefur fengið ýmsar hug­myndir að nýjum götu­nöfnum í Reykja­vík á morg­un­göngum sínum með eig­in­konu sinni.

Eiríkur segir í spaugi­legri Facebook-færslu að hann fái „ýmsar góðar hug­myndir að van­nýttum götu­nöfnum í stíl við nöfn sem fyrir eru“.

Í Rauða hverf­inu í Holtunum telur hann til að mynda að mætti bæta við göt­unum Mein­hollti, Óhollti og jafn­vel Þjóð­hollti.

„Háteigs­kirkja gæti staðið við Drott­in­hollt,“ skrifar Eiríkur og bætir við að hann viti vel að „hin holtin eru bara með einu l-i en fram­burð­ur­inn er eins“.

Eiríkur sér einnig ýmsa mögu­leika í kringum Hrefnu­götu.

„Í grennd við Hrefnu­götu mætti hafa fleiri hvala­heiti,“ segir hann og nefnir Búr­hvals­götu, Háhyrn­ings­götu og Steypireyð­ar­götu.

Hann tekur þó fram að hann viti að „Hrefnu­gata er ekki kennd við hval“.

Karla­gata gefur honum sömu­leiðis til­efni til orða­leikja. Þar mætti að hans mati bæta við Hákarla­götu og Stór­karla­götu.

„Já, ég veit að hún er kennd við þræl­inn Karla,“ bætir Eiríkur við.

Hann fer síðan enn lengra í hug­mynd­unum og beinir sjónum sínum að Vitastíg.

„Svo að farið sé aðeins lengra mætti skipta Vitastíg niður þannig að helm­ing­ur­inn af honum héti Hálf­vita­stígur, eða odda­tölu­megin héti hann Odd­vita­stígur,“ stingur hann upp á í gríni.

Eiríkur virð­ist því hafa nóg af hug­myndum fyrir götu­nafna­nefnd og lýkur færsl­unni á orð­unum:

„Ég ætti lík­lega að bjóða mig fram í götu­nafna­nefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur