Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda

Þá hafa sam­bæri­legar kvart­anir komið upp á við­burðum tengdum safn­korta­spilum

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda
Heims­meist­ara­mótið í Pokémon 2019 Mynd: BRENDAN SMIALOWSKI / AFP

Pokémon-meista­irnn Donghun Youm seg­ist hafa þurft að yfir­gefa Baltimore Reg­ionals mót­inu eftir að lík­ams­lykt frá öðrum kepp­anda varð honum um megn. Youm, sem sigr­aði á Pokémon Milwaukee Regional Championships árið 2023, greindi frá atvik­inu á sam­fé­lags­miðl­inum X og hvatti kepp­endur til að huga betur að per­sónu­legu hrein­læti.

Að sögn Youm var lyktin frá kepp­anda í nágrenn­inu svo sterk að hann og vinir hans áttu erfitt með að ein­beita sér að keppn­inni. Þeir létu dóm­ara á mót­inu vita af ástand­inu en Youm seg­ist að lokum hafa þurft að yfir­gefa svæðið og kasta upp.

Youm nafn­greindi ekki kepp­and­ann sem um ræddi og ekki liggur fyrir hvort móts­hald­arar gripu til ein­hverra aðgerða vegna máls­ins.

Frásögn hans vakti tölu­verð við­brögð meðal ann­arra kepp­enda. Nokkrir sögð­ust sjálfir hafa lent í sam­bæri­legum aðstæðum á fjöl­mennum mótum þar sem sterk lík­ams­lykt hefði haft áhrif á upp­lifun þeirra og jafn­vel ein­beit­ingu í keppni.

Vanda­málið virð­ist ekki bundið við Pokémon-mót. Árið 2023 var greint frá því að Super Smash Bros. Ultimate kepp­and­inn Brian „Cosmos“ Kalu hefði þurft að verða sér úti um svita­lykt­areyði á móti eftir að athuga­semd var gerð við lík­ams­lykt hans. Þá hafa sam­bæri­legar kvart­anir komið upp á við­burðum tengdum safn­korta­spilum.

Umræða hefur því skap­ast um hvort móts­hald­arar eigi að setja skýr­ari reglur um hrein­læti og jafn­vel heim­ila dóm­urum að grípa inn í þegar lík­ams­lykt kepp­enda verður svo mikil að hún truflar aðra.

Skilaboð Youm til ann­arra kepp­enda voru þó ein­föld: Að huga að per­sónu­legu hrein­læti áður en haldið er á fjöl­mennt mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco