Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Heiðdís Rósa Sig­ur­jóns­dóttir greind­ist með æxli í heila fyrir ári síðan

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Heiðdís Rósa og Óðinn Svan Heiðdís Rósa opnar sig um erfið veik­indi Mynd: Facebook

Heiðdís Rósa Sig­ur­jóns­dóttir greind­ist með stórt heila­æxli fyrir ári síðan og gekkst undir tíu klukku­stunda heila­skurð­að­gerð. Í ein­lægri færslu á Facebook rifjar hún upp óviss­una, með­ferð­ina og erf­ið­ustu stund­irnar, en seg­ist jafn­framt hafa lært að lífið sé núna.

Heiðdís Rósa Sig­ur­jóns­dóttir, inn­kaupa­stjóri Kjarna­fæði Norð­lenska, segir frá reynslu sinni af því að grein­ast með heila­æxli fyrir ári síðan í færslu á Facebook. Þar lýsir hún því hvernig grunur um veik­indi hennar vakn­aði löngu áður en grein­ingin lá fyrir, hvernig hún tók frétt­unum og þeim áhrifum sem krabba­meins­með­ferðin hefur haft á líf hennar.

Í októ­ber 2024 leit­aði Heiðdís í tvígang til læknis vegna óvenju­legra til­finn­inga í lík­am­anum. Eftir á komst hún að því að um flog hafði verið að ræða. Að hennar sögn voru ein­kennin þá skýrð með kvíða og streitu.

Hún fór í seg­u­l­ómun 22. sept­em­ber 2025 en hafði ekki fengið nið­ur­stöð­urnar þegar hún hafði sam­band við heil­brigð­is­þjón­ust­una 6. októ­ber og óskaði eftir upp­lýs­ingum.

Daginn eftir fékk hún skila­boð um að mæta í við­tal vegna nið­ur­staðn­anna. Morg­un­inn eftir var henni síðan sagt að taka aðstand­anda með sér.

„Þá hugs­aði ég: nei, nú er þetta búið, ég er dauð­vona,“ skrifar Heiðdís.

Þegar hún mætti í við­talið með eig­in­manni sínum, Óðni Svan Óðins­sonar, var henni sagt að stórt æxli væri hægra megin í heil­anum.

Æxlið hafði sést á myndum frá 2017

Í færsl­unni segir Heiðdís að lækn­arnir hafi spurt hana hversu lengi hún hefði fundið fyrir ein­kenn­unum. Hún hafi þá viljað fá nið­ur­stöð­urnar strax. Síðar hafi komið í ljós að æxlið sæist á eldri myndum frá árinu 2017, en það hefði þá farið fram hjá röntgen­lækni.

Heiðdís segir að grein­ingin hafi verið bæði raun­veru­leg og óraun­veru­leg í senn. Hún hafi þó strax hugsað um börnin sín þrjú og eig­in­mann­inn.

„Ég VERÐ að vinna þetta, ég get ekki farið frá þeim,“ skrifar hún og lýsir því hvernig hún ótt­að­ist til­hugs­un­ina um að börnin hennar þyrftu að alast upp án móður sinnar.

Hún segir að hún hafi ekki grátið mikið vegna eigin veik­inda, en tárin hafi komið þegar hún hugs­aði um börnin eða sá að þeim leið illa.

Tíu klukkustunda aðgerð og meðferð í kjölfarið

Heiðdís gekkst undir tíu klukku­stunda heila­skurð­að­gerð þar sem æxlið var fjar­lægt. Fimm dögum síðar hélt hún heim til Akur­eyrar sem far­þegi í bíl.

Hún lýsir miklu þakk­læti til heila­skurð­lækn­is­ins sem ann­að­ist hana og segir hann hafa verið ein­stak­lega rólegan, kláran og færan í sam­skiptum.

Í kjöl­far aðgerð­ar­innar tók við geisla- og lyfja­með­ferð. Heiðdís seg­ist hafa haldið að lyfja­með­ferðin yrði til­tölu­lega auð­veld þar sem hún tæki lyfin í töflu­formi heima, en reynslan hafi verið allt önnur.

„Lyfja­með­ferð er ERFIÐ, tekur fárán­lega mikið á lík­am­lega OG and­lega,“ skrifar hún.

Hún segir að þótt hún sé þakk­lát fyrir að vera á lífi upp­lifi hún einnig sorg yfir því að hafa misst fyrra þrek og þurfa að takast á við breytt útlit og líf sem sjúk­lingur.

„Ég skoða oft myndir frá því áður en ég greind­ist og hugsa: oh, ég vildi óska að ég væri þarna ennþá og myndi ekk­ert vita,“ segir hún.

Lærði að lífið er núna

Grein­ingin varð einnig til þess að Heiðdís fór að hugsa öðru­vísi um lífið og tím­ann með fjöl­skyld­unni.

Í upp­hafi lyfja­með­ferðar pant­aði hún tvær utan­lands­ferðir, sem hún segir að eig­in­maður hennar hafi kallað heims­reisur. Hún hafði lengi dreymt um að fara til Grikk­lands og segir mik­il­vægt að skapa góðar minn­ingar með fjöl­skyld­unni.

Hún fór einnig í ferð til Nice með vin­konu sinni, Sunnevu.

„Eftir að hafa greinst með krabba­mein lærði ég að lífið er NÚNA,“ skrifar hún.

Erfitt að horfa á soninn þjást

Þrátt fyrir erf­ið­leik­ana við eigin veik­indi segir Heiðdís að það hafi verið einna erf­ið­ast að horfa upp á elsta son sinn, Berg Loga, þjást af miklum bak­verkjum eftir tvær aðgerðir.

Níu mán­uðum eftir fyrstu aðgerð­ina sé hann enn með mikla verki og nú sé skrúfa eða nagli í mjöðm hans far­inn að valda honum óþæg­indum. Fjöl­skyldan bíði nú eftir svörum frá bækl­un­ar­læknum um hvernig megi hjálpa honum.

„Að horfa á hann kval­inn, ósof­inn og geta lítið sem ekk­ert gert er væg­ast sagt HRÆÐILEGT,“ skrifar Heiðdís.

Hún seg­ist óska þess að hún gæti tekið þján­ing­arnar af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur