Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Ing­veldur er allt annað en sátt við stöðu mála

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Alþingi Íslands Mynd: Víkingur

Ing­veldur Anna Sig­urð­ar­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi skatta­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Beindi hún sjónum sér­stak­lega að fyr­ir­hug­aðri gjald­töku á ferða­menn á vin­sælum ferða­manna­stöðum.

Ing­veldur hóf mál sitt á að gera orð­ræðu Sam­fylk­ing­ar­innar að umtals­efni og sagði að þar væru slag­orð á borð við „verkin tala“, „laga Ísland“ og „engar skatta­hækk­anir“ ítrekuð. Raunin væri hins vegar önnur að hennar mati.

„Samt er verið að hækka skatta á allt launa­fólk í land­inu og atvinnu­lífið. Er Sam­fylk­ingin að sann­færa okkur eða sjálfa sig?“ spurði Ing­veldur.

Segir skattinn draga úr samkeppnishæfni

Ing­veldur gagn­rýndi sér­stak­lega það sem hún kall­aði „Blá­skóga­skatt­inn“. Samkvæmt máli hennar stendur til að inn­heimta 4.500 krónur yfir háanna­tím­ann af þeim sem ekki eru með skatta­lega heim­il­is­festi á Íslandi þegar þeir heim­sækja til­tekna áfanga­staði.

Hún sagði fyr­ir­hug­aða gjald­töku vera í óþökk sveit­ar­stjórn­ar­manna og íbúa í nær­sam­fé­lag­inu og taldi hana geta dregið úr sam­keppn­is­hæfni íslenskrar ferða­þjón­ustu.

„Það sér hver maður nema hæstv. ráð­herrar og stjórn­ar­liðar að þetta dæmi gengur ekki upp,“ sagði Ing­veldur.

Að hennar mati gæti gjald­takan á end­anum skilað rík­is­sjóði minni tekjum fremur en meiri. Ferða­menn gætu í auknum mæli valið aðra áfanga­staði ef kostn­aður við Íslands­ferð hækk­aði enn frekar.

„Þjóðin er komin með upp í kok“

Ing­veldur sagði þetta ein­falda hag­fræði og hvatti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar til að falla frá áformunum. Hún lauk ræðu sinni með harðri gagn­rýni á skatta­stefnu stjórn­valda og beindi orðum sínum sér­stak­lega að ráð­herrum Við­reisnar.

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skatta­fylliríi og ég óska eftir því að það fái glitta í smá mark­aðs­hyggju frá ráð­herrum Við­reisnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum