Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

„Hann barð­ist fram á síð­asta dag“

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Fjöl­skyldan á góðri stundu Baxter lést aðeins fjög­urra ára gam­all Mynd: Instagram

Aðeins nokkrum dögum eftir að áhrifa­vald­ur­inn Jennifer Burnham greindi frá and­láti fjög­urra ára sonar síns, Baxters, sagði hún frá því að hann hefði barist við heila­æxli í kyrr­þey síð­ustu mán­uð­ina fyrir and­látið.

„Sonur minn var full­kom­lega heil­brigður, glaður fjög­urra ára drengur,“ sagði hún í mynd­skeiði sem hún birti á Instagram 15. októ­ber. „Hann fór í skól­ann, var í hafna­boltaliði fyrir yngstu börnin, æfði karate og átti fullt af vinum. Hann hefði varla getað verið ham­ingju­sam­ari eða heil­brigð­ari. Ég held að það sé ástæðan fyrir því að þetta kom okkur svona mikið í opna skjöldu.“

Jennifer sagði að Baxter hefði greinst með heila­æxli í apríl, eftir að hann byrj­aði að verða rang­eygður á vinstra auga. Læknar greindu hann fyrst með skjálgi (e. stra­bis­mus), sem er ekki óal­gengt hjá börnum á hans aldri. Seg­u­l­ómun fyrir fyr­ir­hug­aða aðgerð leiddi hins vegar í ljós dreift mið­línu-tróð­æxli, (e. diffuse mid­line gli­oma), alvar­lega teg­und heila­æxlis.

„Því miður er þetta í raun versta teg­und heila­æxlis sem hægt er að fá,“ útskýrði Jennifer. Æxlið var í heila­stofn­inum og því ekki hægt að fjar­lægja það með skurð­að­gerð, sem þýddi að sjúk­dóm­ur­inn var ólækn­andi.

Læknum tókst að fjar­lægja þann hluta æxl­is­ins sem var í litla heil­anum. Jennifer og Bryce reyndu jafn­framt fjöl­margar aðrar með­ferðir, þar á meðal róteinda­geislun.

„Við fórum strax að rann­saka málið af fullum krafti og kanna hvaða aðrir mögu­leikar væru í boði, hvað við gætum gert og hvernig við gætum fundið lækn­ingu,“ sagði hún. „Við próf­uðum með­ferð með rauðu ljósi, súr­efn­is­með­ferð í þrýsti­klefa og súr­efn­is­böð. Við fórum tvisvar til Evrópu í sumar til að prófa með­ferðir sem við höfðum heyrt af þar. Við reyndum bók­staf­lega allt sem okkur datt í hug. Við ræddum við alla lækna í land­inu.“

Þar sem heila­stofn­inn stjórnar allri tauga­starf­semi lík­am­ans er hins vegar ekki hægt að fram­kvæma skurð­að­gerð á æxli á þessu svæði.

„Ég held að það sé erf­ið­ast af öllu. Það er svo sárt að horfa upp á barnið sitt ganga í gegnum þetta og geta bók­staf­lega ekk­ert gert til að hjálpa,“ sagði Jennifer. „Þetta er versta martröð hvers for­eldris og við höfum lifað í þess­ari martröð í sex mán­uði. Þetta er það erf­ið­asta sem við höfum nokkurn tíma gengið í gegnum. Við gerðum bók­staf­lega allt sem við mögu­lega gátum fyrir barnið okkar.“

Hún lagði þó áherslu á hversu sterkur Baxter hefði verið í gegnum þessa erf­iðu tíma.

„Hann var svo sterkur og barð­ist svo hetju­lega, alveg fram á síð­asta dag,“ sagði hún. „Hann var með bros á vör og var ein­fald­lega alltaf glaður.“

Jennifer hafði ekki greint frá dán­ar­or­sök Baxters í fyrstu, enda var and­látið henni svo yfir­þyrm­andi. Hún ákvað þó að segja frá reynslu fjöl­skyld­unnar í þeirri von að hún gæti hjálpað öðrum sem stæðu í svip­uðum sporum.

„Ef ég get hjálpað ein­hverjum á ein­hvern hátt, ein­hverri fjöl­skyldu, með því að segja frá því sem við próf­uðum eða gerðum, eða með því að miðla tengiliðum sem ég hef, þá vil ég gera það,“ sagði hún. „Ég vil geta hjálpað annarri fjöl­skyldu, því eng­inn ætti að þurfa að ganga einn í gegnum þetta.“

Þegar Jennifer og fjöl­skylda hennar reyna nú að takast á við sorg­ina finnur hún huggun í þeirri trú að Baxter sé kom­inn á betri stað.

„Ég veit að hann er á himnum, þar sem hann leikur sér með bíl­ana sína og vöru­bíl­ana, borðar smákökur og ís og skemmtir sér kon­ung­lega,“ sagði hún. „Það veitir mér huggun sem móður að vita að hann finnur ekki lengur til.“

Hún bætti þó við að það breytti ekki þeirri stað­reynd að hjarta hennar væri brostið.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvernig ég á að halda áfram að lifa hvern dag. Það er svo erfitt að ímynda sér lífið án hans, því hann var svo stór og mik­il­vægur hluti af lífi mínu.“

Jennifer á einnig 21 mán­aða gamlan son, Barron, með eig­in­manni sínum, Bryce Burnham.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco