Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Heima­próf hafði gefið jákvæða vís­bend­ingu um myglu

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Fjöl­skylda í Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: BHJ

Kæru­nefnd húsa­mála hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að konu hafi verið óheim­ilt að rifta leigu­samn­ingi vegna meintra raka og myglu­vanda­mála í íbúð í Reykja­vík. Fyr­ir­tæk­inu sem leigði henni hús­næðið var þó aðeins heim­ilað að fá 425.537 krónur greiddar úr ábyrgð­ar­trygg­ingu kon­unnar, þótt krafa þess hafi numið rúm­lega 1,2 millj­ónum króna.

Úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp 15. októ­ber í máli fyr­ir­tæk­is­ins gegn kon­unni. Aðilar höfðu gert ótíma­bund­inn leigu­samn­ing um íbúð­ina í jan­úar 2022. Í des­em­ber í fyrra til­kynnti konan um riftun og vís­aði meðal ann­ars til raka, gruns um myglu og bil­ana í hita­kerfi.

Konan hélt því fram að ástand eign­ar­innar hefði verið veru­lega ábóta­vant um langt skeið og að fyr­ir­tækið hefði ítrekað verið upp­lýst um vanda­málin. Meðal ann­ars hefði komið upp alvar­legur leki í kjall­ara árið 2023 þegar sjóð­heitt vatn fyllti rýmið. Að hennar sögn var aðeins ráð­ist í bráða­birgða­við­gerð og mik­ill óþefur hefði verið í hús­næð­inu eftir það.

Hún sagði einnig að vond lykt hefði verið úr geymslu á móti barna­her­bergi og að raka­vanda­mál hefðu verið á sal­erni í kjall­ara. Hita­kerfi húss­ins hefði ítrekað verið í ólagi og sjá­an­legar raka­skemmdir hefðu verið á suð­ur­hlið húss­ins, meðal ann­ars í her­bergi dóttur hennar. Dóttirin hefði verið veik og orku­lítil og konan sagð­ist sjálf hafa fundið fyrir van­líðan. Hún taldi því ekki for­svar­an­legt fyrir sig og börn sín að búa áfram í hús­inu.

Þegar fjöl­skyldan flutti úr hús­næð­inu kom að sögn kon­unnar í ljós svört útfell­ing í geymslu í kjall­ar­anum. Heima­próf hefði jafn­framt gefið jákvæða vís­bend­ingu um myglu.

Fyr­ir­tækið hafn­aði því að hafa van­rækt við­hald eða að eignin hefði verið haldin göllum. Það benti meðal ann­ars á að konan hefði í sept­em­ber 2025 sagst vilja flytja vegna þess að hún réði ekki lengur við leig­una og hefði mögu­leika á að kaupa aðra íbúð.

Kæru­nefndin taldi riftun kon­unnar ólög­mæta. Hún hafði ekki aflað mats heil­brigð­is­yf­ir­valda um að hús­næðið væri heilsu­spill­andi og nefndin taldi ekki sannað að eignin hefði verið haldin svo veru­legum ann­mörkum að heim­ilt væri að rifta samn­ingnum.

Fyr­ir­tækið krafð­ist bóta vegna þriggja mán­aða en nefndin taldi því hafa borið að tak­marka tjón sitt með því að koma íbúð­inni aftur í útleigu eins fljótt og mögu­legt væri. Konan afhenti lyklana 5. jan­úar en eignin var ekki aug­lýst aftur fyrr en í febr­úar.

Nið­ur­staðan varð því sú að fyr­ir­tæk­inu var heim­ilað að fá 425.537 krónur úr ábyrgð­ar­trygg­ingu kon­unnar vegna jan­ú­ar­mán­aðar. Öðrum kröfum fyr­ir­tæk­is­ins var hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag