Þrír asískir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir skjalafals en dómar þeirra voru nýlega birtir
Þeir voru allir þrír ákærðir fyrir skjalafals með því að hafa í ágúst 2025 framvísað í blekkingarskyni sem sínu vegabréfi í flugstöð Leifs Eiríkssonar fölsuðu vegabréfi.
Enginn þeirra mætti í réttarhöldin þrátt fyrir boðun um slíkt og ekki voru boðuð forföll.
Tveir þeirra voru dæmdir í 45 daga fangelsi en einn fékk 30 daga dóm. Allir dómarnir eru óskilorðsbundnir.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment