1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112

Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.

Helsingborg
HelsingborgLíðan stúlkunnar er stöðug
Mynd: Unsplash.com

Mikil lögregluaðgerð stóð yfir í Furutorpsparken-garðinum í Helsingborg í Svíþjóð í gær eftir að fimm ára stúlka fannst alvarlega slösuð með stungu- eða skurðáverka á leikvelli.

Samkvæmt sænska miðlinum Aftonbladet var stúlkan stungin með hnífi. Lögreglan hefur staðfest að stúlkan hafi fundist á vettvangi með stungu- eða skurðáverka og verið flutt á sjúkrahús, en vill að svo stöddu ekki staðfesta frekari upplýsingar um árásina eða hvort vopn hafi fundist á vettvangi.

„Við höfum fundið tæknileg sönnunargögn á vettvangi, það er það sem ég get sagt á þessari stundu,“ sagði Christian Magnusson, starfandi yfirlögregluþjónn í Helsingborg.

Heilbrigðisyfirvöld á Skáni greindu frá því að stúlkan hefði hlotið alvarlega áverka, en í dag sagði Magnusson að ástand hennar væri stöðugt.

„Ástand hennar er stöðugt og henni heilsast vel,“ sagði hann.

Samkvæmt upplýsingum Aftonbladet var einn einstaklingur handtekinn í tengslum við málið. Þar sem um var að ræða dreng undir 15 ára aldri var handtakan síðar felld niður og drengurinn færður í umsjá barnaverndaryfirvalda. Lögreglan staðfesti þetta á þriðjudag.

„Skömmu eftir að lögregla kom á vettvang var drengur handtekinn í nágrenninu. Handtakan var síðan felld niður vegna ungs aldurs hans og hann var færður í umsjá félagsþjónustunnar,“ sagði Magnusson.

Samkvæmt heimildum Aftonbladet hljóp drengurinn af vettvangi eftir árásina og hringdi sjálfur í neyðarlínuna 112 þar sem hann sagði frá því sem hann hefði gert. Það varð til þess að umfangsmikil leit hófst og stúlkan fannst í kjölfarið.

Fram kemur að árásin virðist hafa verið tilefnislaus og að ekkert bendi til þess að tengsl hafi verið á milli stúlkunnar og drengsins.

Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.

„Við vinnum nú af miklum krafti að rannsókn málsins. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá skýra mynd af því hvað gerðist á vettvangi og hvers vegna þetta átti sér stað,“ sagði Christian Magnusson.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

„2027 lítur vel út“
Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Maðurinn var með reiðhjólahjálm
Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Loka auglýsingu