1
Fólk

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara

2
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

3
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

4
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

5
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

6
Fólk

Ástarsamband án skuldbindinga

7
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

8
Pólitík

Hjálmtýr spyr: „Hvaða Ísrael er verið að verja?“

9
Heimur

Vísundur fleygði afa nokkra metra upp í loftið

10
Heimur

Maður drukknaði í sundlaug hótels á Fuerteventura

Til baka

Erla Hrönn glímdi við alvarleg einkenni streitu og álags

Að hennar sögn reyndist skjót viðbrögð lykilatriði í bataferlinu

Læknir
Læknir að störfumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Vitaly Gariev/Unsplash

Erla Hrönn Júlíusdóttir, kennari í unglingadeild Foldaskóla í Grafarvogi, segir að aðstoð frá VIRK hafi skipt sköpum þegar hún glímdi við alvarleg einkenni streitu og álags í fyrra en hún segir frá þessu í árskýrslu VIRK.

Erla Hrönn leitaði til heimilislæknis í febrúar 2025 eftir að hafa fundið fyrir miklum kvíða, þreytu, einbeitingarskorti, minnisleysi og aftengingu við umhverfi sitt. Hún segir einkennin hafa verið orðin það alvarleg að þau hafi haft áhrif á öryggi hennar í daglegu lífi.

Heimilislæknir hennar benti henni á forvarnarsvið VIRK, sem er ætlað að grípa inn í áður en fólk fellur út af vinnumarkaði vegna veikinda. Aðeins tveimur vikum eftir að beiðni var send fékk Erla Hrönn viðtal hjá forvarnaráðgjafa.

Að hennar sögn reyndist skjót viðbrögð lykilatriði í bataferlinu. Hún segir ráðgjafann hafa greint stöðu hennar vel, leiðbeint henni um viðeigandi úrræði og stutt hana í gegnum ferlið. Þá hafi markþjálfun sem hún fékk í kjölfarið hjálpað henni að átta sig betur á styrkleikum sínum og hvernig hún gæti nýtt þá bæði í starfi og einkalífi.

Erla Hrönn segir að með aðstoðinni hafi hún lært að setja skýrari mörk, hlusta betur á eigin líðan og tileinka sér einföld en áhrifarík bjargráð gegn streitu. Afleiðingin hafi verið aukið úthald, betri einbeiting og minni kvíði.

Hún segir það hafi skilað henni aftur til vinnu sterkari en áður og að hún finni nú aftur fyrir þeim jákvæða og félagslynda persónuleika sem hafi horfið í skugga veikindanna. „VIRK bjargaði mér og það var gert hratt og örugglega,“ segir Erla Hrönn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá
Minning

Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins
Heimur

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112
Heimur

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112

Létust með 42 mínútna millibili
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun
Pólitík

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna
Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna
Heimur

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun
Heimur

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur
Heimur

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala
Landið

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Kristinn V. Jóhannsson er látinn
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

„Hann öskraði af kvölum“
Viðtal
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna
Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna

Vöðvaspenna sest gjarnan á ákveðna staði í líkamanum
„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

„Hann öskraði af kvölum“
Viðtal
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara
Fólk

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara

„Allt í einu fékk lífið nýja þýðingu“
Myndir
Fólk

„Allt í einu fékk lífið nýja þýðingu“

Ástarsamband án skuldbindinga
Fólk

Ástarsamband án skuldbindinga

Loka auglýsingu