1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

„Íbúarnir komu út til að verjast og þá hófu landnemarnir skothríð“

Vesturbakkinn
Mynd: JOHN WESSELS / AFP

Fjórir Palestínumenn létust og fjórir til viðbótar særðust í árás ísraelskra hermanna og landnema á bæinn Tal, suðvestur af Nablus á hernumda Vesturbakkanum, að sögn palestínskra yfirvalda. Á sama tíma staðfestu ísraelsk heilbrigðisyfirvöld að ísraelskur landnemi hefði látist og fleiri særst í átökunum.

Samkvæmt palestínska heilbrigðisráðuneytinu eru þrír hinna særðu Palestínumanna í lífshættu.

Segja landnema hafa hafið árásina

Að sögn heimamanna réðust ísraelskir landnemar fyrr um daginn inn í bæinn Tal, sem er skammt frá ólöglegu landnemabyggðinni Havat Gilad. Þeir hafi hafið skothríð áður en átök brutust út þegar íbúar reyndu að verja heimili sín.

Essam Saifi, leiðtogi Fatah-hreyfingarinnar í Tal, sagði í samtali við Reuters að um 25 til 30 landnemar hefðu fyrst ráðist inn í austurhluta bæjarins og reynt að brjótast inn í tvö íbúðarhús.

„Íbúarnir komu út til að verjast og þá hófu landnemarnir skothríð,“ sagði hann.

Hann bætti við að um hálftíma síðar hefðu þeir snúið aftur og ráðist að vesturhluta bæjarins þar sem barn var barið með vopni. Í kjölfarið hafi ringulreið skapast og ísraelski herinn mætt á vettvang og hafið skothríð ásamt landnemunum.

Ísraelsher lýsir annarri atburðarás

Ísraelsher segir hins vegar að hermenn hafi verið sendir á svæðið eftir að Ísraelar, sem voru í gönguferð nærri Havat Gilad, hefðu orðið fyrir árás.

Herinn heldur því fram að Palestínumaður hafi afvopnað öryggisvörð á svæðinu og notað vopnið til að skjóta á ísraelska landnema.

Samkvæmt björgunarsveitinni Magen David Adom lést einn Ísraeli í árásinni og tveir slasaðir voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús.

Al Jazeera: Landnemar notuðu gönguferð sem yfirskyn

Fréttamaður Al Jazeera í Nablus, Nida Ibrahim, sagði að landnemarnir hefðu komið inn í Tal undir því yfirskyni að þeir væru í gönguferð á svæðinu.

Hún sagði að mynstrið væri orðið kunnuglegt.

„Það eru landnemarnir sem eru vopnaðir, ögra Palestínumönnum og taka yfir land þeirra. Stundum koma þeir með hjólhýsi og reisa tímabundin tjöld sem síðar verða að ólöglegum landnemabyggðum.“

Svæðinu lokað

Eftir átökin setti ísraelsher upp öryggislokanir umhverfis Nablus og Tal.

Samkvæmt Al Jazeera kemur slíkt oft í veg fyrir að særðir Palestínumenn komist undir læknishendur.

„Það er einmitt það sem við sjáum núna, þar sem öllum eftirlitsstöðvum sem liggja að Tal hefur verið lokað,“ sagði Ibrahim.

86 Palestínumenn fallnir á Vesturbakkanum á árinu

Palestínska heilbrigðisráðuneytið segir að með þessum fjórum dauðsföllum hafi alls 86 Palestínumenn verið drepnir af Ísraelum á Vesturbakkanum frá áramótum. Þar af hafi 21 verið skotinn til bana af ísraelskum landnemum.

Palestínska utanríkisráðuneytið fordæmdi árásina harðlega og sagði hana vera enn eina birtingarmynd þeirrar „viðvarandi Nakba“ sem palestínska þjóðin byggi við.

Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að árásin endurspegli samhæfða stigmögnun ofbeldis milli ísraelskra yfirvalda, hersins og landnemahópa.

Netanyahu boðar hörð viðbrögð

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hét því að bregðast af festu við eftir að ísraelskur landnemi lést í átökunum. Hann boðaði jafnframt neyðarfund til að ræða viðbrögð stjórnvalda.

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og leiðtogi á hægri væng stjórnmálanna, hvatti herinn til að beita „járnhnefa“ gegn bænum Tal og nágrenni hans.

„Íbúar landnemabýlanna og brautryðjendur landnámsins eru varnarmúr Ísraelsríkis. Við munum halda áfram að styrkja þá og heiðra fyrir staðfestu þeirra í baráttunni fyrir tilveru okkar,“ skrifaði Smotrich á samfélagsmiðlinum X.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

„Blaut tuska er ekki endilega hrein tuska. Hún þarf líka að fá að þorna“
Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

„Kieran Hayler neitar þessum ásökunum alfarið og harðlega.“
Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Loka auglýsingu