Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni

Málið á rætur að rekja til 7. mars 2023 þegar lögregla stöðvaði bifreið við almennt eftirlit

Fólk í miðbæ Reykjavíkur
Fólk í miðbæ Reykja­víkur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Tveir einstaklingar hafa verið dæmdir í skilorðs­bundið fangelsi fyrir peninga­þvætti eftir að lögregla fann samtals 23.845 evrur, sem eru rúmar þrjár milljónir króna, í reiðufé í farangri þeirra hér á landi. Hluti rann­sóknarinnar snerist meðal annars um samskipti þar sem annar þeirra mæltist til þess að fá peninga afhenta á veitinga­staðnum Duck and Rose í miðborg Reykja­víkur.

William Ankrah Marcha var dæmdur í fimm mánaða fangelsi og Kade Diallo í þrjá mánuði. Refsingar þeirra voru skilorðs­bundnar til tveggja ára. Þá voru 23.845 evrurnar gerðar upptækar ásamt vöxtum og verðbótum.

Málið á rætur að rekja til 7. mars 2023 þegar lögregla stöðvaði bifreið við almennt eftirlit á Ásbrú í Reykja­nesbæ. William og Kade voru farþegar í bifreiðinni og voru þau ásamt öðrum flutt á lögreglustöð. Við leit fundust 16.845 evrur í handtösku og ferða­tösku Kade en 7.000 evrur í ferða­tösku William. Hluti peninganna var falinn í jakka og hluti í vösum á galla­buxum.

Við rannsókn á farsímum William komu fram samskipti sem vöktu athygli lögreglu. Þann 7. mars sendi hann skilaboð á símanúmer sem var vistað undir nafni annars manns í síma hans og spurði hvort viðkomandi gæti komið með peningana til hans. Maðurinn kvaðst geta það og mæltu þeir sér mót á veitinga­staðnum Duck and Rose í miðborg Reykja­víkur. Í öðrum samskiptum í símanum var meðal annars rætt um peninga og fíkniefni og þar fundust einnig myndbönd þar sem marijúana sást.

William sagði fyrir dómi að maðurinn sem hann ætlaði að hitta hefði verið vinur hans. Hann hefði keypt af honum kannabis og greitt fyrir það en maðurinn ætti eftir að gefa honum til baka. Dómurinn taldi skýringu hans á skila­boðunum afar ótrú­verðuga.

Fram­burður Williams og Kade um uppruna og eignar­hald peninganna breyttist ítrekað við rannsókn málsins. Meðal annars komu fram mismun­andi skýringar um hvort um væri að ræða sparifé, vinnulaun eða sameiginlegt fé þeirra. Dómurinn taldi framburð þeirra ruglings­legan og ótrú­verðugan. Þá þótti afar ósennilegt að William hefði ferðast til Íslands með fjárhæð sem nam nærri árslaunum hans.

Dómurinn taldi einnig að það hvernig peningunum hafði verið komið fyrir í farangrinum benti til þess að reynt hefði verið að fela þá. Engar haldbærar skýringar hefðu komið fram um uppruna fjár­munanna og var talið sannað að þeir væru ávinningur af refsiverðum brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk sem finnur fyrir vanlíðan vegna slyssins hvatt til að leita stuðnings.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana