
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, leiðir framboðslista Flokks fólksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí en þetta kemur fram í tilkynningu flokksins.
Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi skipar annað sætið og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari er í þriðja sæti. Fjórða sætið skipar Sigurveig Jóhannsdóttir ráðgjafi ungmenna með fjölþættan vanda, Rúnar Sigurjónsson vélvirki og varaborgarfulltrúi skipar fimmta sætið og Lilja S. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur er í sjötta sæti.
Flokkur fólksins heldur bjartsýnn út í kosningabaráttuna í Reykjavík samkvæmt tilkynningunni. „Áherslur flokksins í núverandi borgarmeirihluta sem stofnað var til fyrir rúmu ári hafa margar skilað sér. Þar ber hæst að nefna aukið framboð á lóðum til íbúðarbygginga þar sem þegar er byrjað að undirbúa skipulag fyrir um 3.700 íbúðir í Úlfarsárdal. Heildaráætlun gerir hins vegar ráð fyrir að þar rísi allt að tíu þúsund íbúðir á næstu árum.“
Helstu stefnumál samkvæmt tilkynningunni:
- Nauðsynlegt er að taka heildstætt á málefnum eldra fólks með því að fækka fólki markvisst á biðlistum, efla heimaþjónustu og styðja við fjölbreyttari búsetuúrræði. Auk þess verður að stuðla almennt að aukinni virkni og bættum lífskjörum eldra fólks.
- Ráðist verður í stórfellda uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og smærri íbúðum í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Flokkur fólksins mun stemma stigu við lóðabraski og vinda ofan af ofurþéttingu byggðar með því að útvíkka vaxtamörk borgarinnar.
- Greiða verður fyrir samgöngum og betra umferðarflæði fyrir alla ferðamáta í borginni. Tryggja þarf að samgöngukerfið virki fyrir alla borgarbúa. Taka verður eðlilegt tillit til þeirra fjölmörgu sem reiða sig á einkabílinn dagsdaglega.
- Leikskólamálin verða tekin föstum tökum með það að aðalmarkmiði að stytta biðlista verulega. Við viljum skoða mun fjölbreyttari og skilvirkari leiðir til að fjölga plássum og koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna á meðan beðið er eftir varanlegu plássi.
- Grunnskólakerfið verður eflt með ríka áherslu á gæði menntunar, aukna lestrarkennslu, einstaklingsmiðaðan stuðning og vellíðan barna.
- Nauðsynlegt er að setja snemmtækan og heildstæðan stuðning við börn og ungmenni sem glíma við fjölþættan vanda í algeran forgang. Leggja þarf ríka áherslu á að þættir innan velferðarkerfisins vinni mun betur saman sem ein heild svo engin fjölskylda upplifi sig týnda í kerfinu.

Komment