1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“

Amanda Knox
Amanda KnoxAmanda fékk ekki að sýna heimildarmynd sína í Bretlandi
Mynd: THEO WARGO / GETTY IMAGES VIA AFP

Heimsókn Amöndu Knox til Bretlands hefur tekið óvænta stefnu, aðeins nokkrum klukkustundum áður en hún átti að stíga á svið til að kynna nýja heimildarmynd sína um morðið á Meredith Kercher.

Hin 38 ára gamla Knox, sem var dæmd en síðar sýknuð í málinu, kom nýverið til Lundúna til að kynna myndina. Til stóð að hún og eiginmaður hennar, Christopher Robinson, myndu taka þátt í tveimur sérstökum sýningum á myndinni Mouth of the Wolf dagana 21. og 22. apríl.

Sýningum aflýst

Áformin fóru þó út um þúfur þar sem myndin hefur ekki flokkun frá British Board of Film Classification (BBFC) og því má ekki sýna hana opinberlega.

Í staðinn munu Knox og Robinson stíga á svið, ræða myndina, svara spurningum og halda bókaáritun.

Í tilkynningu til þátttakenda segir:

„Vegna þess að heimildarmyndin hefur ekki flokkun frá BBFC er ekki heimilt að sýna hana opinberlega. Því verður viðburðinum breytt í umræðu og spurningar og svör, að því loknu bókaáritun.“

Gagnrýni frá fjölskyldu fórnarlambs

Myndin fjallar um Knox þegar hún snýr aftur til Perugia á Ítalíu, þar sem Kercher var myrt árið 2007. Hún syngur einnig sjálf í myndinni.

Gagnrýnendur hafa þó sakað Knox um að reyna áfram að hagnast á málinu. Lögmaður fjölskyldu Kercher, Francesco Maresca, sagði hana nýta rangar sakfellingar sínar til fjárhagslegs ávinnings.

„Það virðist sem Knox komi á nokkurra mánaða fresti með nýtt efni, hlaðvarp, viðtal, heimildarmynd eða kvikmynd,“ sagði hann og bætti við:

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“

Sagði frá „óhugnanlegum“ niðurstöðum

Fréttin kemur skömmu eftir að Knox kom fram í þættinum Good Morning Britain þar sem hún ræddi mál Lucy Letby í tengslum við nýtt hlaðvarp sitt.

Hún sagði þar að rannsókn hennar hefði leitt í ljós atriði sem hefðu valdið henni miklum áhyggjum.

„Ég varð ekki bara áhyggjufull, ég varð beinlínis óttaslegin yfir sumu sem við fundum,“ sagði Knox.

Knox var handtekin árið 2007 og sat tæp fjögur ár í fangelsi áður en hún var látin laus árið 2011. Hún var síðar endanlega sýknuð árið 2015 þegar dómur hennar var felldur úr gildi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu