1
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

2
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

3
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

4
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

5
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

6
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

7
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík

„Þetta má ekki verða eðlilegt á Íslandi“

𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburðir og netárás á kaffihús í Keflavík
Mynd: Skjáskot

Mannlíf hefur fengið áreiðanlegar heimildir um að hópur ísraelskra ferðamanna, sem fullyrt er að séu hermenn, hafi sýnt ógnandi tilburði, haft í hótunum og skemmt muni á palestínsku kaffihúsi í Keflavík.

Atvikið átti sér stað í dag, laugardaginn 15. ágúst 2026, á veitingastaðnum Lava Sweets & Cafe við Hafnargötu. Samhliða ógnandi tilburðum er kaffihúsið sagt standa frammi fyrir skipulagðri netárás sem miðar að því að eyðileggja orðspor þess.

Málið komst í hámæli rétt í þessu eftir að Ahmed Jenin birti opinbera færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann lýsir atburðarásinni og kallar eftir tafarlausum viðbrögðum frá íslenskum yfirvöldum og lögreglu.

Hótanir og skemmdarverk á staðnum

Samkvæmt frásögn Ahmeds Jenin mætti hópurinn inn á Lava Sweets & Cafe, sem er í eigu palestínskra hjóna sem flúðu stríðsátök og hófu rekstur í Reykjanesbæ.

„Í dag, 15. ágúst, fór hópur ísraelskra hermanna sem ferðamenn inn í fyrirtæki í eigu Palestínumanns í Keflavík, Lava Sweets & Cafe. Þeir hótuðu starfsmanninum sem vinnur þar, tóku mynd niður af veggnum og beindu að honum móðgandi og særandi orðbragði,“ skrifar Ahmed.

Hann bætir því við að framkoma hópsins hafi verið skýr og markviss tilraun til þess að hræða starfsfólkið: „Það sem gerðist virtist vera ekkert minna en hótun og skýr ógn.“

Auk atviksins inni á sjálfu kaffihúsinu segir Ahmed að hópurinn hafi fært herferð sína yfir á netið í því skyni að valda rekstrinum fjárhagslegu og samfélagslegu tjóni. Lava Sweets & Cafe hefur hingað til notið mikilla vinsælda og fengið framúrskarandi dóma á netinu.

Ahmed skorar á almenning á Íslandi að sýna samstöðu og bregðast við áreitinu: „Ég vona að allir muni styðja þetta fyrirtæki með því að fara á Google og skilja eftir jákvæða umsögn, svo að þetta áreiti nái ekki að skaða fyrirtækið eða viðveru þess á netinu.“

Kallað eftir viðbrögðum lögreglu og stjórnvalda

Ahmed lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála á Íslandi og segir þetta atvik ekki vera einsdæmi. Hann fullyrðir að fjölmargir einstaklingar af palestínskum uppruna eða stuðningsmenn þeirra hafi mátt þola skipulagðar hótanir undanfarið.

„Spurningin núna er einföld: Munu íslenska lögreglan og ríkisstjórnin taka þessar hótanir alvarlega? Margir á Íslandi hafa nýlega fengið hótanir frá Ísraelum og hafa hundruð hótunarskilaboða borist mismunandi fólki hér á Íslandi. Hversu margar viðvaranir þarf áður en yfirvöld átta sig á því að þetta er gengið of langt?“

Hann lýsir þó enn yfir trausti á íslensk lögregluyfirvöld en brýnir fyrir þeim að grípa inn í áður en ástandið stigmagnast enn frekar: „Við treystum íslensku lögreglunni og vonum innilega að hún muni taka þessum hótunum gegn svona mörgu fólki mun alvarlegar áður en einhver slasast og áður en það verður of seint. Vegna þess að þetta má ekki verða eðlilegt á Íslandi.“

Undir lok færslunnar gagnrýnir Ahmed einnig áherslur í umræðunni um landamæraeftirlit hér á landi og spyr hvers vegna ekki sé fylgst betur með þeim sem hingað koma í þeim tilgangi einum að áreita aðra.

„Ábyrgðin á því að vernda fólk og koma í veg fyrir hótanir og ógnanir liggur hjá yfirvöldum [...] Hvar er allt fólkið sem kallar alltaf eftir hertu landamæraeftirliti?! Eða á það bara við þegar kemur að innflytjendum og flóttafólki?! Takið þessum hótunum alvarlega. Grípið til aðgerða núna, áður en eitthvað gerist sem ekki verður aftur tekið.“

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort lögreglan á Suðurnesjum hafi verið kölluð til vegna málsins eða hvort formleg kæra hafi verið lögð fram en Mannlíf fylgist náið með framvindu mála.

𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
𝗟𝗮𝘃𝗮 𝗦𝘄𝗲𝗲𝘁𝘀 & 𝗖𝗮𝗳𝗲
Mynd: Skjáskot
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Blóðummerki voru víða í svefnherberginu þar sem árásin átti sér stað
Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum
Menning

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur
Myndband
Heimur

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

Besta leiðin til að panta kaffið þitt ef þú vilt huga að heilsunni
Fólk

Besta leiðin til að panta kaffið þitt ef þú vilt huga að heilsunni

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

Bára Beauty á von á tvíburum
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf
Fólk

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna
Heimur

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Blóðummerki voru víða í svefnherberginu þar sem árásin átti sér stað
Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega
Innlent

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega

Loka auglýsingu