1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

10
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Til baka

Ólöglegir landnemar sakaðir um íkveikju í mosku

Mótmæli gegn ofbeldi ólöglegra landnema á götum Tel Aviv

bruni
Frá brunanumÍsraelskir landræningjar eru grunaðir um verknaðinn
Mynd: Skjáskot

Ísraelskir landnemar eru sakaðir um að hafa kveikt í al-Rahma-moskunni í bænum Qusra á hernumda Vesturbakkanum, á sama tíma og hundruð Ísraela söfnuðust saman í Tel Aviv til að mótmæla vaxandi ofbeldi landnema og hernámi Ísraels á palestínsku landsvæði.

Myndskeið sem Al Jazeera hefur staðfest sýna moskuna loga en palestínskar heimildir segja landnema bera ábyrgð á íkveikjunni. Atvikið átti sér stað skömmu eftir að ísraelskar öryggissveitir hófu umfangsmiklar aðgerðir á Vesturbakkanum í kjölfar nýlegra árása þar sem fjórir Palestínumenn og tveir ísraelskir hermenn létust.

Samkvæmt palestínsku fréttastofunni Wafa voru um 80 Palestínumenn handteknir í húsleitum og aðgerðum víða um Vesturbakkann, meðal annars í Ramallah, Jenin, Hebron, Betlehem og Tulkarem. Þá var gerð umfangsmikil innrás í Jenin og fjölda bæja og þorpa í nágrenninu.

Ísraelski ríkisfjölmiðillinn Kan greindi jafnframt frá því að hertar umferðartakmarkanir og fjölmargir öryggiseftirlitsstaðir hefðu verið settir upp á helstu vegum og við innganga þorpa á Vesturbakkanum.

Samkvæmt palestínskum upplýsingum hafa ísraelskir hermenn og landnemar frá 7. október 2023 banað að minnsta kosti 1.185 Palestínumönnum á Vesturbakkanum, þar af um 250 börnum. Yfir 12.600 hafa særst og meira en 24.000 verið handteknir. Talið er að rúmlega 9.200 Palestínumenn séu nú í ísraelskum fangelsum, þar af um 3.200 án þess að hafa verið ákærðir.

Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök hafa ítrekað gagnrýnt Ísrael fyrir að bregðast ekki við ofbeldi landnema með fullnægjandi hætti og segja að sjaldan sé ákært í slíkum málum.

Á sama tíma mótmæltu hundruðir Ísraela á Kaplan-götu í Tel Aviv vaxandi ofbeldi landnema og herstjórn Ísraels á Vesturbakkanum. Lögreglan handtók níu mótmælendur og sagði samkomuna hafa farið fram án leyfis og raskað umferð og allsherjarreglu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Þá eru merki um aukinn einmanaleika meðal nemenda í 8. til 10. bekk.
Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Karlmaður fannst látinn á strönd í Las Galletas.
Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Loka auglýsingu