
Æsispennandi kosning fer nú fram um kosningu formanns yfir rústum Framsóknarflokksins. Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ingibjörg Isaksen berjast um embætti formanns. Framan af var talið líklegt að Lilja myndi taka við hinum beiska bikar sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fráfarandi formaður, skilur eftir sig.
Vandi Lilju er sá að sótt er að henni úr launsátri og það er formaðurinn sem leiðir þá herferð. Þeir sem til þekkja vita að lengi hafa verið fáleikar á milli formanns og varaformanns. Sigurður Ingi hefur gjarnan sniðgengið Lilju þótt þau hafi starfað saman í ríkisstjórn. Þá hefur hann lýst því í hálfum hljóðum að Lilja beri jafna ábyrgð á fylgishruninu og hann. Ingibjörg er krónprinsessa formannsins eins og fram kom í viðtali við formanninn á Rás 1 þar sem hann sagðist vilja ferskt fólk í forystu flokksins. Hræsnin lak af hverju orði þegar hann sagðist ekki blanda sér í slaginn ...
Komment