
Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að leigusala beri að endurgreiða fyrrverandi leigjanda 110 þúsund króna tryggingarfé eftir ágreining um veggjalús sem fannst í leiguíbúð. Ekki tókst að sýna fram á hvaðan veggjalúsin kom og var sönnunarskorturinn látinn bitna á leigusalanum en úrskurðurinn var birtur 27. október.
Málið snerist um íbúð sem leigjandinn tók á leigu 1. febrúar 2026 samkvæmt munnlegum leigusamningi. Hann hafði áður greitt 110 þúsund krónur í tryggingarfé með tveimur greiðslum.
Leigjandinn hélt því fram að íbúðin hefði verið í slæmu ástandi þegar hann tók við henni. Hann fór í tíu daga ferð til Evrópu og varð fljótlega eftir heimkomuna var við veggjalýs. Að lokum flutti hann úr íbúðinni 25. febrúar þar sem hún var orðin óíbúðarhæf.
Leigusalinn taldi hins vegar að veggjalúsin kynni að hafa borist með leigjandanum eftir ferðalag hans. Hann benti á að veggjalýs tengdust ekki endilega óþrifnaði heldur gætu borist milli staða með fólki, húsgögnum og öðrum munum. Leigjandinn hélt aftur á móti fram að gamlir og illa farnir húsmunir hefðu verið í íbúðinni og að lýsnar hefðu hreiðrað um sig þar.
Kærunefndin taldi hvorugan aðilann geta sýnt fram á hvaðan veggjalúsin kom eða hvort hún hefði þegar verið í íbúðinni við upphaf leigutímans.
Þá hafði ekki verið gerð sameiginleg úttekt á íbúðinni, hvorki við upphaf né lok leigutímans, líkt og gert er ráð fyrir í húsaleigulögum.
Nefndin taldi að leigusalinn yrði að bera hallann af þeim sönnunarskorti. Auk þess hafði hann ekki lagt fram gögn eða upplýsingar sem sýndu fram á fjárhagslegt tjón vegna veggjalúsarinnar.
Var því fallist á kröfu leigjandans og leigusalanum gert að endurgreiða tryggingarféð, 110 þúsund krónur, ásamt vöxtum og síðar dráttarvöxtum samkvæmt lögum.
