1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

4
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Ófremdarástand í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli

Nýtt kerfi veldur miklum töfum

Leifsstöð
KeflavíkurflugvöllurAfgreiðslutími farþega utan Schengen sexfaldast
Mynd: Víkingur

Innleiðing á nýju evrópsku landamærakerfi hefur skapað verulegar tafir og öngþveiti í vopnaleit og vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli að undanförnu. Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins tekur nú allt að sex til sjö sinnum lengri tíma en áður var og hafa hvorki aukið fjármagn né fjölgun starfsfólks dugað til að leysa vandann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum hefur afgreiðslutími hvers farþega lengst úr 15–20 sekúndum upp í rúmar 60 sekúndur að meðaltali. Í þeim tilvikum þar sem tæknilegir örðugleikar koma upp getur ferlið tekið allt að eina og hálfa mínútu á hvern einstakling. Tafirnar skýrast af nýjum kröfum um að taka fingraför og ljósmyndir af farþegum og samkeyra upplýsingarnar við gagnagrunna í Brussel.

Mesta álagið skapast þegar stórar flugvélar frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada lenda á svipuðum tíma, en þá geta á bilinu 30 til 33 vélar verið á svæðinu samtímis.

Til stóð að mæta þessum áskorunum með uppsetningu nýrra sjálfsafgreiðslustöðva sem komið var fyrir í komusal flugvallarins í október síðastliðnum. Þær vélar hafa hins vegar ekki virkað sem skyldi og standa nú ónotaðar. Útlit er fyrir að vélarnar verði ekki teknar í notkun fyrr en fram eftir sumri og því ljóst að farþegar utan Schengen-svæðisins mega áfram búa sig undir langar biðraðir á vellinum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu