Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

„Eitt af „ruslinu“ sem komið er til landsins... Þeir kunna þetta!!“

Löður í Árbænum
Löður í Árbænum Mynd: Löður

Deila tveggja ökumanna við bíla­þvottastöð Löðurs í Árbæ hefur ratað inn á Facebook-síðuna Fávitar í umferðinni, þar sem báðir aðilar hafa lýst mjög ólíkri upplifun sinni af atvikinu og sakað hvor annan um óviðeigandi framkomu.

Alberto Ferral Abreu greindi fyrst frá málinu og sagði að hann hefði beðið í röð við bíla­þvotta­stöðina þegar ökumaður grárrar Jaguar-bifreiðar, sem hefði komið síðar að úr annarri akrein, hefði ekið fram fyrir hann.

Abreu kvaðst hafa óskað eftir því að fá að fara á undan þar sem hann hefði komið fyrr og væri með barn í bílnum. Að hans sögn hafnaði hinn ökumaðurinn því og fór á undan inn í þvotta­stöðina.

Abreu sagðist í kjölfarið hafa tekið myndir af bifreiðinni með það fyrir augum að birta þær og kanna hvort aðrir hefðu lent í atvikum með ökumanninum. Hann hélt því jafnframt fram að ökumaðurinn hefði síðar ekið hratt um svæðið og tekið myndir af bifreið hans.

Í færslu sinni setti Abreu fram mjög alvarlegar ásakanir um framkomu ökumannsins gagnvart börnum og eldra fólki.

Segir hina akreinina hafa verið auða

Mummi Jarrah svaraði ásökununum síðar í sama Facebook-hópi og lýsti atburða­rásinni með öðrum hætti.

Að hans sögn hafði hann beðið fyrir aftan Abreu, sem hefði farið út úr bifreið sinni og verið um tíma við skott hennar. Þar sem önnur akrein hefði verið laus hafi hann ákveðið að færa sig yfir á hana í stað þess að bíða.

Jarrah segir Abreu þá hafa orðið mjög reiðan, öskrað á sig og hótað sér í tvígang. Þá heldur hann því fram að Abreu hafi einnig öskrað á starfs­fólk bíla­þvotta­stöðvarinnar.

Jarrah segir að hann hafi sjálfur kosið að svara ekki og reynt að halda ró sinni. Að hans sögn hefði Abreu aðeins þurft að bíða í um eina mínútu vegna atviksins.

Ásakar hann um að hafa rispað bílinn

Jarrah setur jafnframt fram ásökun á hendur Abreu og segir hann hafa komið að bifreið sinni á meðan hann sat inni í henni. Hann kveðst hafa fundið fyrir því að maðurinn snerti bílinn og síðar tekið eftir rispu á hægri hurð. Jarrah telur að Abreu hafi valdið rispunni, en ekkert liggur fyrir sem stað­festir þá ásökun.

Jarrah gagnrýnir einnig að myndir af bifreið hans hafi verið birtar á Facebook og að þar hafi verið settar fram alvarlegar ásakanir á hendur honum. Þá segir hann að í athuga­semdum við umræðuna hafi meðal annars verið rætt um byssur og múslimatrú, sem hann segir ekkert eiga skylt við atvikið.

„Ég vil einfald­lega að fólk heyri báðar hliðar áður en það dæmir einhvern út frá einni Facebook-færslu,“ skrifar Jarrah.

Hann segist ekki vilja halda deilunum áfram en telji nauðsynlegt að svara þegar alvarlegum ásökunum sé beint að honum.

Fordómafull ummæli birtast í umræðunni

Fjöldi fólks hefur tjáð sig um deiluna og eru skoðanir skiptar. Sigrún Kristjáns­dóttir gagnrýnir þá skýringu Jarrah að hinn ökumaðurinn hafi verið að eiga við eitthvað í skotti bifreiðar sinnar. Hún bendir á að fólk geti sinnt ýmsu meðan það bíður í röð og segir það ekki veita öðrum heimild til þess að fara fram fyrir.

Aðrir hvetja mennina til að leita til lögreglu eða kanna upptökur úr öryggis­myndavélum á svæðinu. Abreu sjálfur svarar umræðunni og segir mynda­vélarnar ekki ljúga og að atburða­rásina megi sannreyna með upptökum.

Athygli vekja þó sérstak­lega ummæli þar sem uppruni Jarrah virðist dreginn inn í umræðuna þótt hann hafi ekkert með sjálft umferðar­atvikið að gera.

Jóhannes Geir Hilmisson skrifar undir færsluna: „Mússi sem á þennan bíll svo kemur ekki á óvart.“

Enn lengra gengur Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, fyrrum vara­borgar­fulltrúi Miðflokksins, sem skrifar: „Eitt af „ruslinu“ sem komið er til landsins... Þeir kunna þetta!!“

Ummæli Sveins Hjartar vísa með niðrandi hætti til fólks sem „komið er til landsins“ og eru því skýrt útlendinga­andúð í umræðu sem upphaf­lega snerist um deilu tveggja ökumanna í röð við bíla­þvottastöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum