1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

5
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

8
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

9
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

„Eitt af „ruslinu“ sem komið er til landsins... Þeir kunna þetta!!“

Löður Árbæ
Löður í Árbænum
Mynd: Löður

Deila tveggja ökumanna við bílaþvottastöð Löðurs í Árbæ hefur ratað inn á Facebook-síðuna Fávitar í umferðinni, þar sem báðir aðilar hafa lýst mjög ólíkri upplifun sinni af atvikinu og sakað hvor annan um óviðeigandi framkomu.

Alberto Ferral Abreu greindi fyrst frá málinu og sagði að hann hefði beðið í röð við bílaþvottastöðina þegar ökumaður grárrar Jaguar-bifreiðar, sem hefði komið síðar að úr annarri akrein, hefði ekið fram fyrir hann.

Abreu kvaðst hafa óskað eftir því að fá að fara á undan þar sem hann hefði komið fyrr og væri með barn í bílnum. Að hans sögn hafnaði hinn ökumaðurinn því og fór á undan inn í þvottastöðina.

Abreu sagðist í kjölfarið hafa tekið myndir af bifreiðinni með það fyrir augum að birta þær og kanna hvort aðrir hefðu lent í atvikum með ökumanninum. Hann hélt því jafnframt fram að ökumaðurinn hefði síðar ekið hratt um svæðið og tekið myndir af bifreið hans.

Í færslu sinni setti Abreu fram mjög alvarlegar ásakanir um framkomu ökumannsins gagnvart börnum og eldra fólki.

Segir hina akreinina hafa verið auða

Mummi Jarrah svaraði ásökununum síðar í sama Facebook-hópi og lýsti atburðarásinni með öðrum hætti.

Að hans sögn hafði hann beðið fyrir aftan Abreu, sem hefði farið út úr bifreið sinni og verið um tíma við skott hennar. Þar sem önnur akrein hefði verið laus hafi hann ákveðið að færa sig yfir á hana í stað þess að bíða.

Jarrah segir Abreu þá hafa orðið mjög reiðan, öskrað á sig og hótað sér í tvígang. Þá heldur hann því fram að Abreu hafi einnig öskrað á starfsfólk bílaþvottastöðvarinnar.

Jarrah segir að hann hafi sjálfur kosið að svara ekki og reynt að halda ró sinni. Að hans sögn hefði Abreu aðeins þurft að bíða í um eina mínútu vegna atviksins.

Ásakar hann um að hafa rispað bílinn

Jarrah setur jafnframt fram ásökun á hendur Abreu og segir hann hafa komið að bifreið sinni á meðan hann sat inni í henni. Hann kveðst hafa fundið fyrir því að maðurinn snerti bílinn og síðar tekið eftir rispu á hægri hurð. Jarrah telur að Abreu hafi valdið rispunni, en ekkert liggur fyrir sem staðfestir þá ásökun.

Jarrah gagnrýnir einnig að myndir af bifreið hans hafi verið birtar á Facebook og að þar hafi verið settar fram alvarlegar ásakanir á hendur honum. Þá segir hann að í athugasemdum við umræðuna hafi meðal annars verið rætt um byssur og múslimatrú, sem hann segir ekkert eiga skylt við atvikið.

„Ég vil einfaldlega að fólk heyri báðar hliðar áður en það dæmir einhvern út frá einni Facebook-færslu,“ skrifar Jarrah.

Hann segist ekki vilja halda deilunum áfram en telji nauðsynlegt að svara þegar alvarlegum ásökunum sé beint að honum.

Fordómafull ummæli birtast í umræðunni

Fjöldi fólks hefur tjáð sig um deiluna og eru skoðanir skiptar. Sigrún Kristjánsdóttir gagnrýnir þá skýringu Jarrah að hinn ökumaðurinn hafi verið að eiga við eitthvað í skotti bifreiðar sinnar. Hún bendir á að fólk geti sinnt ýmsu meðan það bíður í röð og segir það ekki veita öðrum heimild til þess að fara fram fyrir.

Aðrir hvetja mennina til að leita til lögreglu eða kanna upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu. Abreu sjálfur svarar umræðunni og segir myndavélarnar ekki ljúga og að atburðarásina megi sannreyna með upptökum.

Athygli vekja þó sérstaklega ummæli þar sem uppruni Jarrah virðist dreginn inn í umræðuna þótt hann hafi ekkert með sjálft umferðaratvikið að gera.

Jóhannes Geir Hilmisson skrifar undir færsluna: „Mússi sem á þennan bíll svo kemur ekki á óvart.“

Enn lengra gengur Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, fyrrum varaborgarfulltrúi Miðflokksins, sem skrifar: „Eitt af „ruslinu“ sem komið er til landsins... Þeir kunna þetta!!“

Ummæli Sveins Hjartar vísa með niðrandi hætti til fólks sem „komið er til landsins“ og eru því skýrt útlendingaandúð í umræðu sem upphaflega snerist um deilu tveggja ökumanna í röð við bílaþvottastöð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð
Myndir
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Marga Ingeborg Thome er látin
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í innflutningi, heildsölu og smásölu á bifreiðum
Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

Loka auglýsingu