1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Til baka

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Eldsneytishækkanir keyra verðbólguna upp í 5,9%

Dælubúnaður bensínstöð
• Bensínverð rauk upp um 22% frá lokum ágúst
Mynd: Engin Akyurt/Unsplash

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent í september samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Árshækkun vísitölunnar mælist þar með 5,9% og hefur ekki verið hærri í meira en tvö ár. Verðbólguþrýstingur hefur mælst almennur en dregið hefur úr umfangi húsnæðiskostnaðar í verðbólgunni. Án áhrifa húsnæðiskostnaðar mælist verðbólga 5,7%. 

Mikil áhrif virðisaukaskattbreytinga

Rekstur farartækja til einkanota var sá einstaki undirflokkur sem hækkaði hvað mest (0,38 prósent). Þá hækkun má rekja til afnáms tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á dísel og bensín. Heimilistæki (0,09 prósent) og reiknuð húsaleiga (0,07 prósent) koma þar á eftir. Á síðustu vikum hefur Verðlagseftirlit ASÍ beint sjónum sínum að æfingagjöldum íþróttafélaga. Umfang þeirra gjaldskrárbreytinga má sjá í afþreyingarþjónustu, sem hefur 0,05 prósenta áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs. 

Á móti lækkuðu farþegaflutningar, þ.á.m. flugfargjöld erlendis (-0,36 prósent), og því er framlag yfirflokksins Flutningar neikvætt um 0,04 prósentur. Sá yfirflokkur sem hækkar mest er Húsnæði, vatn og rafmagn (0,10 prósent) 

Bensínverð hækkar á ný

Afnám tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts skýrði að stærstum hluta verðhækkanir á bensíni á fyrstu tveim vikum septembermánaðar en meðaltal lægstu verða á bensíni hækkaði um 13% yfir tveggja vikna tímabil. Verðþróun á olíu hefur hins vegar verið sveiflukennd og hafa verðhækkanir á bensíni haldið áfram út septembermánuð, m.a. vegna verðhækkana á innkaupsverði á bensíni. Hafa þær verðhækkanir verið meiri en styrking gengis krónunnar á sama tímabili. Hefur meðaltal lægstu verða því hækkað um 22% frá lokum ágústmánaðar, umfram áhrif virðisaukaskattbreytinga. Að óbreyttu má búast við frekari áhrifum af olíuverðhækkunum á vísitölu neysluverðs í október. 

Þær raskanir sem orðið hafa á framleiðslu olíu hafa haft ólík áhrif á verðþróun á bensíni og dísel. Verð á dísel olíu hefur frá ársbyrjun hækkað um 44% borið saman við um 37% hækkun á bensínverði. 

Þróun dagvöruverðs ólík milli verslana

Verðlagseftirlit ASÍ fjallaði í síðustu viku um þróun dagvöruverðs frá ágúst 2025 til dagsins í dag. Í fréttinni var bent á að hægt hafi á verðhækkunum á matvöru undanfarin misseri en dagvöruvísitala ASÍ lækkað milli mánaða í september. Þegar nánar er rýnt í úttektina kemur í ljós að breytingum milli verslana er misdreift, eða á bilinu 1,3%–6%, í þeim átta verslunum sem samanburðurinn nær til. Mest hækkaði verð í Fjarðarkaupum, um 6%, og Krambúðinni (4,2%). Minnst hækkaði verð í Kjörbúðinni, um 1,3%. 

Líkt og fram kom í frétt Verðlagseftirlitsins vega hækkanir á kjöti og mjólkurvörum þungt í hækkunum verslana undanfarin misseri. Verðlag á innfluttum vörum og þurrvörum hefur verið stöðugra, m.a. vegna hagfelldrar þróunar á gengi krónunnar. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leyndardómar og litagleði
Menning

Leyndardómar og litagleði

Hrafnhildur og Hildigunnur bjóða í sjalagleðina
Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Eldsneytishækkanir keyra verðbólguna upp í 5,9%
Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Loka auglýsingu